[Gandur] Rannsóknaræfing

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Tue Oct 24 16:51:08 GMT 2006


Rannsóknaræfing á hausti

Eins og síðasta vetur mun Félag þjóðfræðinga á Íslandi taka þátt í  
rannsóknaræfingu með Félagi íslenskra fræða og fleiri góðum  
fræðafélögum.  Rannsóknaræfing verður að þessu sinni haldin við lok  
Hugvísindaþings (www.hugvis.hi.is/2006), – í Tunglinu, Iðusölum við  
Lækjargötu, laugardagskvöldið 4. nóvember næstkomandi.

Húsið opnar klukkan 19.30 – borðhald hefst kl. 20.00

Veitingar
Eftir hin andlegu hlaðborð Hugvísindaþings er tilvalið að gæða sér á  
blönduðu smáréttahlaðborði! Meðal rétta má nefna kjúklinga- og  
lambakjötsspjót, snittur, tígrisrækjur og sæta eftirrétti.  
Drykkjarföng verða til sölu á staðnum.

Ræðumaður kvöldsins
Ævar Örn Jósepsson.

Skemmtiatriði
Að borðhaldi loknu verða skemmtiatriði á vegum veislustjóra og stjórnar.

Aðgangseyrir er 2.900 krónur

Hægt er að skrá sig með því að senda tölvupóst til Katrínar  
Axelsdóttur: katax at hi.is, eða hringja í hana í síma: 553-1486.  
Nauðsynlegt er að gera það í síðasta lagi mánudaginn 30. október.

Staður: Tunglið, 3. hæð Iðuhússins við Lækjargötu.

Félagsmenn og stúdentar, fjölmennum!

Aðalheiður Guðmundsdóttir
Stofnun Árna Magnússonar
Árnagarði við Suðurgötu
tel.: (354) 868 0306/ (354) 552 0510
http//:www.hi.is/~adalh








More information about the Gandur mailing list