[Gandur] Kviksögukvöld - Primary eftir Robert Drew (cinéma vérité)

ReykjavíkurAkademían ra at akademia.is
Wed Oct 25 12:36:52 GMT 2006


Kviksaga - heimildamyndamiðstöð ReykjavíkurAkademíunnar kynnir:

Annað kvöld, fimmtudaginn 26. október kl. 20.00, stendur Kviksaga að sýningu
heimildamyndarinnar "Primary" eftir Robert Drew í húsnæði
ReykjavíkurAkademíunnar, 4. hæð.

Drew er meðal frumkvöðla  cinéma vérité stefnunnar í Bandaríkjunum ásamt 
Richard Leacock og D A Pennebaker sem komu einnig að gerð þessarar myndar. Í 
henni
fylgjumst við með John F. Kennedy og Hubert Humphrey á
kosningaferðalagi vegna forkosninga demókrataflokksins 1960.  Hún
þykir byltingakennd fyrir það leyti að Kennedy er fylgt eftir
nótt sem nýtan dag með nýstárlegri upptökutækni. Með lipurri
myndatöku reyndu Drew og félagar að forðast stýrða frásögn en
færa áhorfendur þess í stað inn í atburðarásina sem er aðall
cinéma vérité stefnunnar eða direct cinema. Myndin er meðal
þeirra fyrstu sem gerð var innan þessarar kvikmyndastefnu sem
leitaðist við að ná 'sannleikanum' á mynd. Hún gefur einstæða
sýn á þjóðlíf þessa tíma í Bandaríkjunum og fyrstu skrefin
í örlagaríkum stjórnmálaferli Kennedy.  Myndin er með ensku tali.

Kristinn Schram, þjóðfræðingur, fylgir myndinni úr hlaði.
Allir velkomnir. Aðgangur ókeypis.



Kviksaga - Heimildamyndamiðstöð
ReykjavíkurAkademían
Hringbraut 121, JL-húsinu, 4. hæð
107 Reykjavík

www.akademia.is
kviksaga at akademia.is



More information about the Gandur mailing list