[Gandur] Dr. James Barrett heldur fyrirlestur um Quoygrew: Lífsviðurværi Orkneyinga á víkinga- og miðöldum. Sunnudaginn 26. nóvember kl.15:00 – 16:30.

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Wed Nov 22 12:11:13 GMT 2006


Félag íslenskra fornleifafræðinga

Dr. James Barrett heldur fyrirlestur um fornleifafræði:
Quoygrew: Making a living in late Viking Age and medieval Orkney.
Quoygrew: Lífsviðurværi Orkneyinga á víkinga- og miðöldum.

Opinn fyrirlestur í sal Þjóðminjasafns Íslands 
sunnudaginn 26. nóvember 2006 kl.15:00 – 16:30.

Dr. James Barrett starfar við fornleifafræðideild háskólans í York á 
Englandi. Sérsvið hans er miðaldafornleifafræði og beinafræði með sérstaka 
áherslu á Skotland á Víkingatímanum og hagkerfi og vistfræðisögu 
veiðisamfélaga.

Helstu áhugasvið James Barretts eru:
·       Hagkerfisstjórnun jaðarsamfélaga
·       Samfélög er hafa viðurværi sitt af fiskveiðum
·       Aðferðafræði í miðaldafornleifafræði
·       Mörk víkingaaldar og miðalda í norður Evrópu
·       Efling efnahags og verslunar með framleiðsluvörur, einkum þorsk og 
síld, í Evrópu á miðöldum
·       Fólksflutningar og tilvist á víkingatíma
·       Sætta sundurleit vísindaleg, kennileg og söguleg viðmið innan 
fornleifafræðinnar

Rannsóknarverkefni
James Barrett stjórnar fornleifauppgreftinum á Quoygrew á Orkneyjum. 
Rannsóknin beinist að fornleifum frá víkingatíma og miðöldum. James er í 
forsvari fyrir “Fishlab” rannsóknarstofuna í háskólanum í York sem er 
þekkt fyrir fádæma gott samanburðabeinasafn sjávardýra og rannsóknir á 
vistfræði og sjávarfangi á sögulegum og forsögulegum tíma. James Barrett 
stjórnar umhverfisþætti fornleifarannsóknarinnar á Kaupangi í Noregi sem 
háskólinn í Ósló stendur fyrir. Sem stendur er hann að skrifa bók fyrir 
háskólaútgáfuna í Edinborg um Skotland á víkingatímanum. Þá stjórnar James 
nýju þriggja ára rannsóknarverkefni sem fjármagnað er af Leverhumesjóðnum. 
Beinist verkefnið að upphafi og eflingu fiskveiða á miðöldum þar sem beitt 
er dýrabeina- og samendalíffræðilegum aðferðum. Sjá nánar 
http://www.york.ac.uk/depts/arch/staff/Barrett.htm

Opinn fyrirlestur á vegum Félags íslenskra fornleifafræðinga og 
Þjóðminjasafns Íslands.

Allir velkomnir, 


Ragnheiður Traustadóttir, fornleifafræðingur
stjórnandi Hólarannsóknarinnar
www.holar.is/holarannsoknin
rannsóknarsvið
Þjóðminjasafn Íslands
Suðurgötu 43, 101 Reykjavík
netfang-ragnheidur at thjodminjasafn.is 
sími: 5302269
gsm:6998256







Bestu kveðjur / Best regards
Rúna K. Tetzschner
kynningarstjóri / Public Relation Manager
Þjóðminjasafn Íslands / National Museum of Iceland
Suðurgötu 41 - 101 Reykjavík
fars. 824-2039, s. 530-2222 eða 5302248
netf. runa at thjodminjasafn.is
veff. http://www.thjodminjasafn.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061122/4ddb4ead/attachment.html


More information about the Gandur mailing list