[Gandur] Er sagan bara sjónarmið? Spurningin um hlutlægni í sagnfræði. 21. nóv. kl. 12:05-12:55.

frettatilkynning at thjodminjasafn.is frettatilkynning at thjodminjasafn.is
Fri Nov 17 15:26:24 GMT 2006


Er sagan bara sjónarmið? Spurningin um hlutlægni í sagnfræði.

Hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafninu, þriðjudaginn
21. nóvember kl. 12:05-12:55. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.

Í útdrætti fyrirlesara, Guðmundar Jónssonar, segir:

Allt frá því að sagnfræðin gerði tilkall til þess að teljast til vísinda á
19. öld hefur hlutlægnishugtakið verið miðlægt í þekkingarfræði
greinarinnar. Sagnfræðingar töldu að hægt væri að komast að öruggum,
hlutlægum sannleika um fortíðina með rannsóknum á heimildum og vönduðum
vinnubrögðum, umfram allt heimildarýni. Viðhorf og gildismat
sagnfræðingsins kæmu þar ekki nærri.

Þessi pósitífíska vísindahugmynd hefur ekki staðist tímans tönn og á
síðustu áratugum hafa verið uppi miklar efasemdir um að sagnfræðin geti
yfirleitt fært okkur haldgóða þekkingu á fortíðinni. Sumir ganga jafnvel
svo langt að segja að söguleg frásögn sé bara sjónarmið þess sem hana
skrifar, sagan sé því ekkert annað en aragrúi af sjónarmiðum.

Í erindinu verða reifaðar hugmyndir sagnfræðinga um hlutlægnishugtakið og
spurt hvort því sé viðbjargandi á okkar póstmódernísku tímum.

Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar um Sagnfræðingafélag Íslands má finna á heimasíðu
félagsins, www.sagnfraedingafelag.net

----------------------------------------------------------------------
Guðni Th. Jóhannesson
Hugvísindastofnun/Centre for Research in the Humanities
Háskóli Íslands/University of Iceland
101 Reykjavík
ICELAND
Sími/tel: +354 525 4716
Farsími/mobile: +354 895 2340
Fax: +354 525 4410



-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061117/600920b8/attachment.html


More information about the Gandur mailing list