<tt>Er sagan bara sjónarmið? Spurningin um hlutlægni í
sagnfræði.

</tt><tt>

Hádegisfundur Sagnfræðingafélags Íslands í Þjóðminjasafninu, þriðjudaginn

21. nóvember kl. 12:05-12:55. Aðgangur ókeypis og öllum heimill.

Í útdrætti fyrirlesara, Guðmundar Jónssonar, segir:

Allt frá því að sagnfræðin gerði tilkall til þess að teljast til vísinda
á

19. öld hefur hlutlægnishugtakið verið miðlægt í þekkingarfræði

greinarinnar. Sagnfræðingar töldu að hægt væri að komast að öruggum,

hlutlægum sannleika um fortíðina með rannsóknum á heimildum og vönduðum

vinnubrögðum, umfram allt heimildarýni. Viðhorf og gildismat

sagnfræðingsins kæmu þar ekki nærri.

Þessi pósitífíska vísindahugmynd hefur ekki staðist tímans tönn og á

síðustu áratugum hafa verið uppi miklar efasemdir um að sagnfræðin geti

yfirleitt fært okkur haldgóða þekkingu á fortíðinni. Sumir ganga jafnvel

svo langt að segja að söguleg frásögn sé bara sjónarmið þess sem hana

skrifar, sagan sé því ekkert annað en aragrúi af sjónarmiðum.

Í erindinu verða reifaðar hugmyndir sagnfræðinga um hlutlægnishugtakið
og

spurt hvort því sé viðbjargandi á okkar póstmódernísku tímum.

Guðmundur Jónsson er prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands.

Nánari upplýsingar um Sagnfræðingafélag Íslands má finna á heimasíðu

félagsins, www.sagnfraedingafelag.net

Guðni Th. Jóhannesson

Hugvísindastofnun/Centre for Research in the Humanities

Háskóli Íslands/University of Iceland

101 Reykjavík

ICELAND

Sími/tel: +354 525 4716

Farsími/mobile: +354 895 2340

Fax: +354 525 4410

</tt>