[Gandur] Frændafundur 6

Aðalheiður Guðmundsdóttir adalh at hi.is
Mon Dec 18 15:41:34 GMT 2006


Ráðstefnan Frændafundur 6

Hugvísindadeild Háskóla Íslands og Fróðskaparsetur Føroya efna til  
ráðstefnu, Frændafundar, hinnar sjöttu, sem þessir aðilar halda  
sameiginlega, í Þórshöfn 26.–27. júní 2007. Á ráðstefnunni verður  
fjallað um ýmis efni, sem varða Færeyjar og Ísland. Fyrstu fimm  
ráðstefnurnar voru haldnar í Reykjavík 1992, í Þórshöfn 1995, í  
Reykjavík 1998, í Þórshöfn 2001 og í Reykjavík 2004. Í kjölfar þeirra  
allra voru gefin út ráðstefnurit, sem bera aðaltitlana Frændafundur  
(1993), Frændafundur 2 (1997), Frændafundur 3 (2000), Frændafundur 4  
(2002) og Frændafundur 5 (2005).
     Gert er ráð fyrir, að á ráðstefnunni verði haldnir nokkrir  
stakir fyrirlestrar, sem fjalli um tengsl Færeyja og Íslands á  
einhverju tilteknu sviði eða feli í sér með öðrum hætti greinilega  
skírskotun til beggja landanna. Fyrirlestrar skulu fluttir annaðhvort  
á færeysku eða íslenzku. Fyrirlesarar verða beðnir að birta á tjaldi  
annaðhvort allan texta sinn eða öll meginatriði hans. Hver  
fyrirlestur á að taka um 20 mínútur.
     Hér með er auglýst eftir stökum fyrirlestrum til flutnings á  
ráðstefnunni. Þeir, sem áhuga hafa, eru beðnir að láta í té stutta  
lýsingu á fyrirlestri sínum auk titils. Ekki er víst, að unnt verði  
að setja á dagskrá alla fyrirlestra, sem gerð er tillaga um. Reynt  
verður að fá fjárstuðning frá menntamálaráðuneytinu til að greiða  
flugfargjöld þeirra Íslendinga, sem flytja fyrirlestra á  
ráðstefnunni, en ekki er hægt að ábyrgjast, að slíkur fjárstuðningur  
fáist.
     Umsóknir um að flytja fyrirlestra á ráðstefnunni skal senda  
formanni Færeyjanefndar hugvísindadeildar, Inga Sigurðssyni,  
Árnagarði við Suðurgötu, 101 Reykjavík, netfang:  HYPERLINK  
"mailto:ingi at hi.is" ingi at hi.is, ekki síðar en 1. febrúar 2007.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20061218/9ca60455/attachment.html


More information about the Gandur mailing list