[Gandur] Útilistaverk - augljós og falin
Listasafn Reykjavíkur
soffia.karlsdottir at reykjavik.is
Tue Jun 28 11:08:09 BST 2005
Listasafn Reykjavíkur
--------------------------------------------------------------------------------
Útilistaverk - augljós og falin
Fréttabréf þetta er á myndrænu formi hér
http://phoenix.gagarin.is/email-manager/archive.php/id/1360,19,28c40267d703cd10259c083939dcffc8
Kvöldgöngur frá Kvosinni:
Útilistaverk - augljós og falin
Fimmtudaginn 30. júní kl. 20.00
Lagt upp frá gamla Geysishúsinu Aðalstræti 2, Vesturgötumegin.
Fimmtudagskvöldgöngurnar sem menningarstofnanir borgarinnar hafa staðið fyrir í sumar hafa mælst mjög vel fyrir og verið vel sóttar af fólki á öllum aldri.
Næsta ganga verður fimmtudagskvöldið 30. júní og ber hún yfirskriftina Útilistaverk - augljós og falin. Skoðuð verða útilistaverk í Kvosinni og næsta nágrenni bæði þau sem setja sterkan svip á miðborgina og þau sem vart eru sýnileg, en hafa áhrif á það hvernig við upplifum umhverfi okkar og skerpa athygli og sýn okkar á umhverfið. Leiðsögumaður er Ólöf K. Sigurðardóttir deildarstjóri fræðsludeildar Listasafns Reykjavíkur.
Gangan tekur um eina klukkustund og lýkur við Iðu í Lækjargötu.
Sjá nánar hér
Kær kveðja,
Soffía Karlsdóttir
Kynningarstjóri
Listasafn Reykjavíkur
Sími: 590-1200 / 820-1202
--------------------------------------------------------------------------------
Kjósir þú að fá ekki fleiri bréf sem þetta frá okkur geturðu afskráð þig hér:
[/afskrá]
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/gandur/attachments/20050628/44dc48e6/attachment.html
More information about the Gandur
mailing list