[Folda] sameining nemendafélaga

Hrafnhildur Hannesdóttir hrafnha at hi.is
Thu Apr 3 17:26:26 GMT 2008


Sæl Foldu-félagar

Tek undir með síðustu ræðumönnum. Ég tel að markmið og eðli þessara 
tveggja félaga séu mjög ólík. Sjá af heimasíðum félaganna:
http://folda.hi.is/log.htm
http://www.fjallid.net/fjallidupload/Logfjallsins.pdf

Hlutverk (FOLDU) félagsins er:
- að gæta hagsmuna/réttinda félagsmanna innan skora og deildar.
- að stuðla að bættri menntun og aðstöðu félagsmanna.
- að auka tengsl og samvinnu félagsmanna ásamt því
- að viðhalda góðu félagslífi.
- að koma á góðum tengslum við Jarðvísindastofnun og gæta hagsmuna 
félagsmanna þar.
- að stuðla að faglegri umræðu meðal félagsmanna með fundum/ kynningum/ 
fyrirlestrum.
- að stuðla að auknum tengslum félagsmanna við atvinnulífið

Ég tel að af nógu sé að taka af þessum lista. Félagið er ekki nema 2,5 
árs og er því rétt að slíta ungbarnaskónum, það þarf því að hlúa vel að 
því á næstu árum og efla það með ráð og dáð. Þar sem eitt af markmiðum 
HÍ er að efla framhaldsnám við skólann, held ég að okkur veiti ekkert af 
því að halda vel á spöðunum og einbeita okkur að því hlutverk sem lagt 
var af stað með við stofnun félagsins.

Ég tek hins vegar undir með stjórn Foldu að auka megi samskipti við 
grunn-nemendur með sameiginlegum uppákomum öðru hverju, bjóða þeim á 
fyrirlestraraðir FOLDU, sem og hefur verið gert að ég best veit. Á þann 
hátt kynnast grunn-nemar þeim rannsóknum sem stundaðar eru við 
Jarðvísindastofnun og því fólki sem þær stunda.

Hrafnhildur




Björn Oddsson wrote:
> Sæl
>
> Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
> algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
> undir einn hatt.
>
> Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
> markmið sem félögin geta stefnt að.  Folda er og á að vera mun faglegra
> nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
> framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
> erlendis.  Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
> stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
> enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
>
> Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp
> þar sem á við.
>
> kv.
>
> Björn Oddsson
>
>
>   
>> Komi þið sæl, [English below]
>>
>> Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk hennar
>> vera að halda partí n.k. föstudag.  Folda mun bjóða nemendum í grunnnámi
>> að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum nokkurra
>> framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna sjálfa.
>> Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
>> námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
>> félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
>> tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt öðrum
>> veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt  er að sem flestir
>> mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
>>
>> Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
>> seldur á mjög hagstæðu verði.
>>
>> Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
>>
>> Kveðja,
>> Stjórn Foldu.
>>
>> P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
>> endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
>> stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur á
>> öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni „Jarðvísindi fyrir
>> erlenda stúdenta“ munu standa að.
>>
>> --------
>>
>> Hello everyone,
>>
>> The new administration of Folda has taken office and the first assignment
>> is to throw a party next Friday. Folda will invite the undergraduate
>> students in geology to join us. The idea is to introduce them to what
>> projects a few of us are working on and give them a short presentation of
>> the Institution of Earth Sciences. The goal is to extend fellowship and
>> collaboration between us in earth sciences and also to encourage them to
>> participate in Folda’s events. Folda will offer free beer and The
>> Department of Earth Sciences will offer some light snacks.
>>
>> If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
>> price.
>>
>> The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
>>
>> Regards,
>> The Board of Folda.
>>
>> P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking about
>> the merge of Folda and undergraduate geosciences students to form a new
>> student association under the new Department of Earth Science, with
>> participation of the "Earth science for foreign students" program.
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Folda mailing list
>> Folda at listar.hi.is
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>>
>>     
>
>
>   


More information about the Folda mailing list