[Folda] sameining nemendafélaga
Hálfdán Ágústsson
halfdana at hi.is
Thu Apr 3 17:15:21 GMT 2008
Daginn
Ég verð að taka undir með Birni, og auðvitað Ívari sem varð fyrri til að
svara en ég, um að sameining nemendafélaga í grunn- og framhaldsnámi sé
ekki framfaraskref. Björn og Ívar hafa reifað nokkuð ítarlega af hverju
það stafar.
Hins vegar er öll samvinna og samgangur að sjálfsögðu að hinu góða og
það hlýtur einmitt að vera eitt af hlutverkum Foldu að kynna sig,
framhaldsnema og framhaldsnámið nemum í grunnnámi.
Kveðja,
Hálfdán
es. Fara útlendingar í framhaldsnámi í jarðvísindum ekki sjálfkrafa inn
í Foldu? Og nemar í grunnnámi inn í viðeigandi nemendafélag?
Björn Oddsson wrote:
> Sæl
>
> Þar sem ég get ekki þátt í bjórdrykkjunni góðu, þá vil ég leggjast
> algjörlega gegn því að nemendafélög framhaldsnema og grunnnema verði sett
> undir einn hatt.
>
> Þau starfa algjörlega að mismunandi markmiðum og í raun afskaplega fá
> markmið sem félögin geta stefnt að. Folda er og á að vera mun faglegra
> nemendafélag heldur en fjallið og aðalmarkmið félagsins var að sameina
> framhaldsnema í jarðvísindum sem sitja víða um stofnanir á Íslandi og
> erlendis. Það hefur ekki alveg virkað sem skyldi og legg ég til að ný
> stjórn Foldu leggi sig frekar fram í þeim málum, heldur en að gera félagið
> enn tengdara þeim sem stunda nám í Öskju og hafa áhuga á að drekka bjór.
>
> Hins vegar er sjálfsagt að félögin starfi saman og bakki hvort annað upp
> þar sem á við.
>
> kv.
>
> Björn Oddsson
>
>
>> Komi þið sæl, [English below]
>>
>> Ný stjórn Foldu hefur tekið við störfum og mun fyrsta embættisverk hennar
>> vera að halda partí n.k. föstudag. Folda mun bjóða nemendum í grunnnámi
>> að vera með og halda fyrir þá smá kynningu á störfum nokkurra
>> framhaldsnema hér við stofnunina ásamt því að kynna stofnuna sjálfa.
>> Tilgangurinn að efla tengsl og samvinnu jarðvísindanema á öllum stigum
>> námsins. Einnig að hvetja nemendur í grunnnámi til að taka þátt í
>> félagsstarfi og atburðum á vegum Foldu sem og ráðstefnum og öðru sem
>> tengist jarðvísindum. Boðið verður upp á fljótandi veitingar ásamt öðrum
>> veitingum sem eru í boði jarðfræðiskorar. Mikilvægt er að sem flestir
>> mæti til að tilgangi samkomunar sé náð.
>>
>> Ef svo ólíklega vill til að fríu veitingarnar klárist mun bjór verða
>> seldur á mjög hagstæðu verði.
>>
>> Mæting er í Öskju kl: 20.00 á föstudaginn.
>>
>> Kveðja,
>> Stjórn Foldu.
>>
>> P.s Einnig verða óformlegar umræður yfir bjórdrykkju hvort eigi að
>> endurskoða fyrirkomulag núverandi nemendafélaga og stofna nýtt félag
>> stúdenta undir hinni nýju Jarðvísindaskor. Þar sem jarðvísindanemendur á
>> öllum stigum námsins ásamt stúdentum í námsbrautinni „Jarðvísindi fyrir
>> erlenda stúdenta“ munu standa að.
>>
>> --------
>>
>> Hello everyone,
>>
>> The new administration of Folda has taken office and the first assignment
>> is to throw a party next Friday. Folda will invite the undergraduate
>> students in geology to join us. The idea is to introduce them to what
>> projects a few of us are working on and give them a short presentation of
>> the Institution of Earth Sciences. The goal is to extend fellowship and
>> collaboration between us in earth sciences and also to encourage them to
>> participate in Folda’s events. Folda will offer free beer and The
>> Department of Earth Sciences will offer some light snacks.
>>
>> If the free beer will dry up, you can buy some more offered in a good
>> price.
>>
>> The meeting will start at 20:00 in Askja next Friday.
>>
>> Regards,
>> The Board of Folda.
>>
>> P.s. Some informal discussions will be held during the beer drinking about
>> the merge of Folda and undergraduate geosciences students to form a new
>> student association under the new Department of Earth Science, with
>> participation of the "Earth science for foreign students" program.
>>
>>
>> _______________________________________________
>> Folda mailing list
>> Folda at listar.hi.is
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/folda
>>
>
>
More information about the Folda
mailing list