[Arminius] Oktoberfest framhald

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Tue Oct 5 08:35:30 BST 2004


Halló aftur

Ég er sammála thví ad gleyma thessu bara og segi bara: No hard feelings :o)

kaer kvedja,
Kidda


> Heil og sæl samstúdentar. Ég ætla að byrja á því að árétta að þeir sem
> aðstoðuðu með einhverjum hætti við Oktoberfest eiga allar þakkir skyldar
> og eiga alls ekki að taka reiðipóst gærdagsins til sín. Ef til vill var
> pósturinn ekki næginlega skýr. Ég ætla alla vegana að biðja alla afsökunar
> sem aðstoðuðu við hátíðina og tóku póstinn til sín. Svo var ekki ætlunin.
> Nú er þetta mál gleymt enda ekki ætlunin að vera langrækinn. Vona ég að
> allir séu kátir og hressir og hlakki til að taka þátt í skemmtilegu
> félagslífi í vetur:)  Pósturinn í gær einkenndist af neikvæðni og kannski
> leiðindum. Er ekki ætlun mín að póstar á þessum póstlista verði svoleiðis
> í framtíðinni:) Þetta var bara eitt skipti og einungis til að árétta að
> við vorum ekki nógu ánægð með þátttöku fólks.
>
> Næsta fimmtudag verður uppskeruhátíð fyrir hetjurnar okkar sem sáu til
> þess að Oktoberfest, stærsta hátíð háskólanema á Íslandi, varð að
> veruleika. Ætlum við að hafa hana sem veglegasta til að launa fólki fyrir
> framtakið. Vonum við að allir geti tekið frá tíma. Þeir sem voru með okkur
> í þessu eru vinsamlegast beðnir um að melda sig hvort þeir mæta eða ekki.
> Því miður er ekki alveg kominn tími á þetta, kannski munum við stefna
> fólki saman fyrr (svona um fjögurleytið) til að hafa gaman eða þá að við
> látum duga að fólki mæti um 6-7 leytið og þá beint í mat.
>
>
> Beztu kveðjur
> Palli, formaður Arminiusar
> _______________________________________________
> Arminius mailing list
> Arminius at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/arminius
>



More information about the Arminius mailing list