[Arminius] Oktoberfest framhald

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Tue Oct 5 13:34:06 BST 2004


Heill og sæll Palli,

ég kemst ekki á uppskeruhátíðina en vona að þið skemmtið ykkur vel og náið
að jafna ykkur (sérstaklega þú, Silvia og Særún!) eftir erfiði
undanfarinna vikna.
Þið máttuð alveg vera sár og reið yfir lítilli þátttöku og það er alveg
víst að ef þið hefðuð ekki skipulagt þetta svona vel og lagt ykkur svona
mikið fram hefði þetta allt farið í handaskolunum. Á næsta ári mætti bara
gera skýrara vaktaplan og tiltektarplan og svoleiðis svo ekkert fari á
milli mála með hvenær hver á að gera hvað (t.d. væri hægt að senda út plan
sem þið semjið án þess að taka tillit til neins og síðan láta fólk sjá
sjálft um að skipta á vöktum eða fá einhvern til að leysa sig af, þ.a.
allir vinni eitthvað eða útvegi a.m.k. starfskraft í eitthvað).

Bestu kveðjur,
Bjarnheiður :)


More information about the Arminius mailing list