[Arminius] Oktoberfest framhald
arminius at listar.hi.is
arminius at listar.hi.is
Tue Oct 5 02:40:37 BST 2004
Heil og sæl samstúdentar. Ég ætla að byrja á því að árétta að þeir sem
aðstoðuðu með einhverjum hætti við Oktoberfest eiga allar þakkir skyldar
og eiga alls ekki að taka reiðipóst gærdagsins til sín. Ef til vill var
pósturinn ekki næginlega skýr. Ég ætla alla vegana að biðja alla afsökunar
sem aðstoðuðu við hátíðina og tóku póstinn til sín. Svo var ekki ætlunin.
Nú er þetta mál gleymt enda ekki ætlunin að vera langrækinn. Vona ég að
allir séu kátir og hressir og hlakki til að taka þátt í skemmtilegu
félagslífi í vetur:) Pósturinn í gær einkenndist af neikvæðni og kannski
leiðindum. Er ekki ætlun mín að póstar á þessum póstlista verði svoleiðis
í framtíðinni:) Þetta var bara eitt skipti og einungis til að árétta að
við vorum ekki nógu ánægð með þátttöku fólks.
Næsta fimmtudag verður uppskeruhátíð fyrir hetjurnar okkar sem sáu til
þess að Oktoberfest, stærsta hátíð háskólanema á Íslandi, varð að
veruleika. Ætlum við að hafa hana sem veglegasta til að launa fólki fyrir
framtakið. Vonum við að allir geti tekið frá tíma. Þeir sem voru með okkur
í þessu eru vinsamlegast beðnir um að melda sig hvort þeir mæta eða ekki.
Því miður er ekki alveg kominn tími á þetta, kannski munum við stefna
fólki saman fyrr (svona um fjögurleytið) til að hafa gaman eða þá að við
látum duga að fólki mæti um 6-7 leytið og þá beint í mat.
Beztu kveðjur
Palli, formaður Arminiusar
More information about the Arminius
mailing list