[Arminius] Félagslífið framundan

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Mon Oct 4 02:02:48 BST 2004


Mikið verður um að vera á næstunni í félagslífi þýzkunema. Næstkomandi
fimmtudag verður haldin uppskeruhátíð fyrir þá sem aðstoðuðu við
Oktoberfest. Föstudaginn 15. október verður vísindaferð í
Sjálfstæðisflokkinn, föstudaginn 22 október verður vísindaferð í
Landsbankann og föstudaginn 29. október verður vísindaferð í Orkuveituna.

Nú á næstu dögum verður byrjað að selja félagsskírteini Arminiusar.
Árgjaldið hefur ekki alveg verið ákveðið, en verður líklega í kring um
2000 krónur. Innifalið í því eru margs konar fríðindi svo sem aðgangur að
vísindaferðum, ódýrara á jólaskemmtun félagsins, ódýrara á árshátíð og svo
auðvitað aðgangur að öðrum atburðum félagsins. Stjórnin ætlar á næstu
dögum að ræða við Germaniu um hvort félagsaðild að Arminiusi muni janframt
fela í sér félagsaðild að Germaniu, mun árgjaldið velta töluvert á því
hvort af því verður. Fólk er þó beðið um að setja sig í stellingar og fara
að safna fyrir gjaldinu:) Mikið verður um að vera í vetur svo að enginn
ætti að verða svikinn af því að ganga í félagið.

Frekari upplýsingar um starfið í vetur verða sendar út á póstlistann svo
ef þið vitið um einhverja sem eru ekki skráðir vinsamlega bendið þeim á
það svo þeir skrái sig á listann.

Með kveðju,
Stjórn Arminiusar.


More information about the Arminius mailing list