[Arminius] Oktoberfest samantekt
arminius at listar.hi.is
arminius at listar.hi.is
Mon Oct 4 20:46:23 BST 2004
Hæ allir, ein spurning.
Ég kom með svona peninga mittisbeltatösku á oktoberfest, varð e-r var við
hana? Ef e-r er með hana í fórum sínum getið þið vinsamlegast látið mig
vita? Mér finnst ógeðslega leiðinlegt samt þetta með tiltektina, ég
reyndar sá nú mitt nafn þarna og veit alveg að ég hjálpaði að auglýsa og
vann og setti upp tjaldið. Það varð nú smá klúður samt hjá mér því ég var
ekki viss hvenær ætti að taka til og taka allt niður. Ég fór í svaka
göngutúr klukkan 11 að leita að símanum mínum sem tíndist um kvöldið en án
árangurs. Kom við í tjaldinu á göngunnni en sá engann en var sjálf
upptekin seinni partinn af deginum. En nú er ég komin með símann sem góð
vinkona mín fann:) (kemur sér vel að vera með sérstakt wallpaper á símanum
sem bestu vinir manns þekkja).
En já í sambandi við félagsgjaldið, ég var að pæli hvort ég mætti borga
þúsundkrónur í stað 2000 og fá þá ekki nótuna borgaða til baka sem ég
lagði út fyrir kartoni í auglýsingar?
En já miður hvernig fór með e-ð af þessu!!!
Nadira
Hae Palli
>
> ein spurning: Finnst thér ég t.d. ekki hafa hjálpad nóg? Svolítid
> tvíraedur
> pósturinn frá stjórninni thar sem thid nefnid nöfn á einstaklingum sem
> hjálpudu
> meira en adrir.
> Ég tel mig t.d. hafa lagt mig alla fram um ad hjálpa eins og ég gat midad
> vid
> adstaedur hjá mér. Spurning líka hvort ad thad maetti skipuleggja
> hópvinnuna betur
> og gera lista um hver á ad gera hvad og hvenaer! Thad var t.d. held ég
> fyrir
> einhverja ekki ljóst um hvort ad taka aetti tjaldid nidur á sunnudag eda
> mánudag. Ég
> komst ekki í gaer thar sem ad afi minn fékk heilablódfall, annars hefdi ég
> ad
> sjálfsögdu maett.
>
> Alla vegana thá finnst mér thetta mjög leidinlegt ad heyra og persónulega
> tek ég
> thetta ekki til mín, thar sem ég lagdi mig alla fram um ad hjálpa eins og
> ég gat.
> Eins kom systir mín og adstodadi thó ad hún sé ekki í thýsku.
>
> kv.Kidda
>
>
>> Heil og sæl öll sömul og takk fyrir helgina. Oktoberfest 2004 heppnaðist
>> ágætlega en þó eru nokkur mál sem stjórn Arminiusar vill koma á
>> framfæri.
>> Fyrst og fremst þakklæti til allra sem aðstoðuðu við að halda hátíðina,
>> en
>> jafnframt viljum við koma á framfæri að við erum mjög óhress með lélega
>> þátttöku þýzkunema í aðstoð. Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því
>> hversu mikil framkvæmd þetta er og það að koma kannski í nokkra
>> klukkutíma
>> á föstudaginn er lítil hjálp. Hátíðin í ár mæddi að mestu á stjórninni
>> (sem skipar nú bara 4 einstaklinga) og þýddi það að við slepptum tímum
>> nánast í 3 vikur til þess að láta þessa hátíð verða að veruleika. Við
>> erum
>> búin að vera á fullu, leggja okkur alveg 200% fram og því þykir okkur
>> mjög
>> leiðinlegt hversu lítið fólk var tilbúið að aðstoða. Við erum mjög sár
>> og
>> í raun reið yfir þessu. Ljóst er að Oktoberfest verður ekki haldin að
>> ári
>> nema fólk sé tilbúið að leggja meira á sig, að minnsta kosti ekki í
>> nafni
>> þýzkunema.
>>
>> Allt of fáir voru tilbúnir að koma og setja upp tjaldið með okkur.
>> Fleiri
>> aðstoðuðu um kvöldið en ekki nánda nærri nógu margir. Margir virtust
>> líta
>> á þetta sem tíma til að detta í það, er það miður að þýzkunemar hafi
>> ákveðið að þetta væri bezti tíminn fyrir fyllerí, jafnvel þó þeir hafi
>> verið að vinna, og láta þá okkur hin fáu vinna meira. Nánast enginn
>> mætti
>> í tiltekt!! Páll Baldursson var sá eini fyrir utan stjórnina, sem gat
>> séð
>> af dýrmætum tíma sínum á sunnudaginn og er ljóst að hann á miklar þakkir
>> skyldar.
>>
>> Er það þýzkunemum til mikils vanza að láta þetta fara svona. Enn verra
>> er
>> að þrátt fyrir úthringingar og beiðni um aðstoð hafi einstaklingar færst
>> undan því að koma og hjálpa í tiltekt. Mikið neyðarástand skapaðist þar
>> sem öll tjöldin fuku á sunnudeginum. Var mikil mildi að ekki fór illa,
>> Særún til dæmis fauk með tjaldinu þegar við fáu sem vorum mætt reyndum í
>> örvæntingu að halda í stóra tjaldið svo það fyki ekki. Það bar ekki
>> árangur og fauk Særún nokkra metra með tjaldinu og Bryndís þurfti að
>> kasta
>> sér niður á jörðina svo hún tækist ekki á loft og stórslasaði sig. Sem
>> betur fer sluppu þær báðar, fyrir utan að Bryndís fékk högg á fótinn og
>> stokkbólgnaði. Tjónið á tjöldunum nemur um þremur milljónum að sögn
>> Seglagerðarinnar. Við fáu sem mættum vorum frá tíu um morguninn til
>> klukkan að verða sex non stop í tiltekt. Rusl fauk út um allt og
>> aðstæður
>> til að athafna sig voru ekki allt of góðar.
>>
>> Fólk ætti að hafa gert sér grein fyrir því að tiltekt yrði um helgina.
>> Stjórnin var í tjaldinu laugardaginn og svo auðvitað sunnudaginn. Enginn
>> eða mjög fáir létu sjá sig (einungis Svava og Páll Baldursson). Fór svo
>> að
>> við sem vorum mætt þurftum að hringja út vini og vandamenn til þess að
>> geta ráðið við aðstæður. Er það þýzkunemum til mikils vanza!
>>
>> Stjórn Arminiusar harmar mjög hvernig fór, þakkar þeim sem lögðu
>> eitthvað
>> af mörkunum en ljóst er að einungis þeir sem eitthvað lögðu á sig munu
>> uppskera. Stjórnin hefur ákveðið að launa þeim sem stóðu í þessu með
>> okkur
>> með því að bjóða til veizlu á fimmtudaginn næsta. Póstur með nánari
>> upplýsingum verður sendur út bráðlega. Hvað verður gert við afganginn af
>> ágóðanum af hátíðinni er ljóst að einungis þeir sem lögðu mest á sig fá
>> að
>> njóta hans. Ætti það að vekja fólk til umhugsunar um það hvort það sé
>> tilbúið að leggja eitthvað á sig fyrir hátíðina á næsta ári.
>>
>> Sérstakt þakklæti fá:
>>
>> Páll Baldursson
>> Svava
>> Alex
>> Frank
>> Jürgen kærasti Bryndísar
>>
>> Aðrir sem lögðu meira á sig en margir og eiga þakkir skyldar fyrir það
>> eru:
>> Heimir
>> Nadira
>> Berglind Prünner
>>
>> Aðrir sem tóku þátt í þessu með okkur eiga að sjálfsögðu líka þakkir
>> skyldar. Fólk veit það bezt sjálft hvort það á þakkir skyldar.
>>
>> Með Tag der deutschen Einheit kveðju,
>>
>> Mjög svo örmagna stjórn Arminiusar
>>
>> _______________________________________________
>> Arminius mailing list
>> Arminius at listar.hi.is
>> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/arminius
>>
>
> _______________________________________________
> Arminius mailing list
> Arminius at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/arminius
>
More information about the Arminius
mailing list