[Arminius] Oktoberfest samantekt

arminius at listar.hi.is arminius at listar.hi.is
Mon Oct 4 13:06:09 BST 2004


Hae Palli

ein spurning: Finnst thér ég t.d. ekki hafa hjálpad nóg? Svolítid tvíraedur
pósturinn frá stjórninni thar sem thid nefnid nöfn á einstaklingum sem hjálpudu
meira en adrir.
Ég tel mig t.d. hafa lagt mig alla fram um ad hjálpa eins og ég gat midad vid
adstaedur hjá mér. Spurning líka hvort ad thad maetti skipuleggja hópvinnuna betur
og gera lista um hver á ad gera hvad og hvenaer! Thad var t.d. held ég fyrir
einhverja ekki ljóst um hvort ad taka aetti tjaldid nidur á sunnudag eda mánudag. Ég
komst ekki í gaer thar sem ad afi minn fékk heilablódfall, annars hefdi ég ad
sjálfsögdu maett.

Alla vegana thá finnst mér thetta mjög leidinlegt ad heyra og persónulega tek ég
thetta ekki til mín, thar sem ég lagdi mig alla fram um ad hjálpa eins og ég gat.
Eins kom systir mín og adstodadi thó ad hún sé ekki í thýsku.

kv.Kidda


> Heil og sæl öll sömul og takk fyrir helgina. Oktoberfest 2004 heppnaðist
> ágætlega en þó eru nokkur mál sem stjórn Arminiusar vill koma á framfæri.
> Fyrst og fremst þakklæti til allra sem aðstoðuðu við að halda hátíðina, en
> jafnframt viljum við koma á framfæri að við erum mjög óhress með lélega
> þátttöku þýzkunema í aðstoð. Fólk virðist ekki gera sér grein fyrir því
> hversu mikil framkvæmd þetta er og það að koma kannski í nokkra klukkutíma
> á föstudaginn er lítil hjálp. Hátíðin í ár mæddi að mestu á stjórninni
> (sem skipar nú bara 4 einstaklinga) og þýddi það að við slepptum tímum
> nánast í 3 vikur til þess að láta þessa hátíð verða að veruleika. Við erum
> búin að vera á fullu, leggja okkur alveg 200% fram og því þykir okkur mjög
> leiðinlegt hversu lítið fólk var tilbúið að aðstoða. Við erum mjög sár og
> í raun reið yfir þessu. Ljóst er að Oktoberfest verður ekki haldin að ári
> nema fólk sé tilbúið að leggja meira á sig, að minnsta kosti ekki í nafni
> þýzkunema.
>
> Allt of fáir voru tilbúnir að koma og setja upp tjaldið með okkur. Fleiri
> aðstoðuðu um kvöldið en ekki nánda nærri nógu margir. Margir virtust líta
> á þetta sem tíma til að detta í það, er það miður að þýzkunemar hafi
> ákveðið að þetta væri bezti tíminn fyrir fyllerí, jafnvel þó þeir hafi
> verið að vinna, og láta þá okkur hin fáu vinna meira.  Nánast enginn mætti
> í tiltekt!! Páll Baldursson var sá eini fyrir utan stjórnina, sem gat séð
> af dýrmætum tíma sínum á sunnudaginn og er ljóst að hann á miklar þakkir
> skyldar.
>
> Er það þýzkunemum til mikils vanza að láta þetta fara svona. Enn verra er
> að þrátt fyrir úthringingar og beiðni um aðstoð hafi einstaklingar færst
> undan því að koma og hjálpa í tiltekt. Mikið neyðarástand skapaðist þar
> sem öll tjöldin fuku á sunnudeginum. Var mikil mildi að ekki fór illa,
> Særún til dæmis fauk með tjaldinu þegar við fáu sem vorum mætt reyndum í
> örvæntingu að halda í stóra tjaldið svo það fyki ekki. Það bar ekki
> árangur og fauk Særún nokkra metra með tjaldinu og Bryndís þurfti að kasta
> sér niður á jörðina svo hún tækist ekki á loft og stórslasaði sig. Sem
> betur fer sluppu þær báðar, fyrir utan að Bryndís fékk högg á fótinn og
> stokkbólgnaði. Tjónið á tjöldunum nemur um þremur milljónum að sögn
> Seglagerðarinnar. Við fáu sem mættum vorum frá tíu um morguninn til
> klukkan að verða sex non stop í tiltekt. Rusl fauk út um allt og aðstæður
> til að athafna sig voru ekki allt of góðar.
>
> Fólk ætti að hafa gert sér grein fyrir því að tiltekt yrði um helgina.
> Stjórnin var í tjaldinu laugardaginn og svo auðvitað sunnudaginn. Enginn
> eða mjög fáir létu sjá sig (einungis Svava og Páll Baldursson). Fór svo að
> við sem vorum mætt þurftum að hringja út vini og vandamenn til þess að
> geta ráðið við aðstæður. Er það þýzkunemum til mikils vanza!
>
> Stjórn Arminiusar harmar mjög hvernig fór, þakkar þeim sem lögðu eitthvað
> af mörkunum en ljóst er að einungis þeir sem eitthvað lögðu á sig munu
> uppskera. Stjórnin hefur ákveðið að launa þeim sem stóðu í þessu með okkur
> með því að bjóða til veizlu á fimmtudaginn næsta. Póstur með nánari
> upplýsingum verður sendur út bráðlega. Hvað verður gert við afganginn af
> ágóðanum af hátíðinni er ljóst að einungis þeir sem lögðu mest á sig fá að
> njóta hans. Ætti það að vekja fólk til umhugsunar um það hvort það sé
> tilbúið að leggja eitthvað á sig fyrir hátíðina á næsta ári.
>
> Sérstakt þakklæti fá:
>
> Páll Baldursson
> Svava
> Alex
> Frank
> Jürgen kærasti Bryndísar
>
> Aðrir sem lögðu meira á sig en margir og eiga þakkir skyldar fyrir það eru:
> Heimir
> Nadira
> Berglind Prünner
>
> Aðrir sem tóku þátt í þessu með okkur eiga að sjálfsögðu líka þakkir
> skyldar. Fólk veit það bezt sjálft hvort það á þakkir skyldar.
>
> Með Tag der deutschen Einheit kveðju,
>
> Mjög svo örmagna stjórn Arminiusar
>
> _______________________________________________
> Arminius mailing list
> Arminius at listar.hi.is
> http://listar.hi.is/mailman/listinfo/arminius
>



More information about the Arminius mailing list