[Arminius] Takk fyrir frábæra Oktoberfest
arminius at listar.hi.is
arminius at listar.hi.is
Wed Oct 6 19:09:07 BST 2004
Hæ krakkar,
mig langar að þakka ykkur fyrir frábæra Oktoberfest. Ég kom á föstudaginn og
vissi ekki alveg hvað var í gangi þegar Páll æddi til mín og sagði mér að ég
væri að fara að vinna!!! Og ég sem ætlaði bara að sjá þýzka sendiherran opna
bjórtunnuna, hitta nokkra fyrrum samstúdenta og láta mig svo hverfa! En
auðvitað hjálpaði ég og stóð við bjórdæluna í tæpan klukkutíma. Kannski ekki
mikil hjálp,
en ég gerði þó eitthvað ;o). Mér finnst alveg rosa leiðinlegt að heyra hvað
tiltektin gekk illa, eins og allt gekk vel í fyrra!!! Ég vona bara að
uppskeruhátíðin verði rosalega skemmtileg, því allir sem lögðu fram
hjálparhönd við þetta alltsaman eiga það svo sannarlega skilið að lifta sér
upp og sletta aðeins meira úr klaufunum!!!
Ég vona bara að félagslífið eigi eftir að vera alveg frábært hjá ykkur og
verð að viðurkenna að þegar ég sé hvað er að fara að vera um að vera hjá
ykkur sé ég eiginlega eftir því að hafa ekki verið lengur í þýzkunni!!!
Hafið það rosalega gott
Mit freundlichen Grüßen aus Eskifjörður
Sigga Rósa
P.S. Hvernig væri að fara í menningarferð á Eskifjörð??? ;o)
More information about the Arminius
mailing list