[Vid-stund] ?==?utf-8?q? ?==?utf-8?q? Próftaflan í vor (24.?==?utf-8?q? apríl - 9.?==?utf-8?q? maí)

Jón Gunnar Jónsson jgj at hi.is
Thu Jan 18 08:58:21 GMT 2018


Sæl Hildur,

Ég sé að Inngangur að réttarhagfræði er þarna.  Þýðir merkinging "C" að prófið sé í tölvuveri?

Kv.
JGJ

 
 
 
On Wednesday, January 17, 2018 15:19 GMT, Hildur Bjarnadóttir <hildurb at hi.is> wrote: 
 
> Sæl og gleðilegt nýtt ár!
> Prófstjóri hefur hafið vinnu við próftöflu vormisseris og áætlar að birta 
> hana á netinu í síðustu viku janúar, sjá meðfylgjandi frá prófstjóra:
> 
> "Ágæta samstarfsfólk!
> 
> Hvet ykkur til að ganga úr skugga um að námskeið ykkar séu merkt inn á 
> próftöflu prófstjóra, þ.e. ef halda á í þeim próf á tímabilinu 24. apríl 
> til 9. maí.
> 
> Í viðhengi er skrá þar sem hægt er að sjá "ný" námskeið á próftöflu, þ.e. 
> þau sem eru á töflu 2018 en voru ekki 2017 (flipinn "2018 EN EKKI 2017").
> 
> Í öðrum flipa ("2017 EN EKKI 2018") eru þau námskeið sem voru á 
> vortöflunni 2017 en eru ekki á núverandi próftöflu.
> 
> Vona að þetta auðveldi ykkur yfirferð próftöflunnar. Fyrstu drög munu 
> birtast í þessari viku, á morgun eð hinn, og svo verður fínpússað og 
> stefnt á að endanleg gerð verði tilbúin föstudaginn 26. janúar.
> 
> Minni á að mikilvægt er að námskeið hvorki vanti né að þeim sé ofaukið á 
> töflu. 
> 
> Huga þarf sérstaklega að þeim tví- og þríburanámskeiðum sem eiga að 
> fylgjast að.
> 
> Almennt er ekki tekið við óskum um ákveðna prófdaga. Hins vegar er tekið 
> við óskum um hvort próf eigi að vera í apríl (5 prófdagar) eða maí (6 
> prófdagar). Séu óskir um ákveðna innbyrðisröð prófa er mikilvægt að koma 
> þeim á framfæri sem fyrst.
> 
> Kveðja,
> Hreinn"
> 
> 
> Prófaskrifstofa kennslusviðs | Central Examination Office
> Hreinn Pálsson
> Prófstjóri | Director of Examinations
> 
> Háskóli Íslands | University of Iceland
> Aðalbygging | Main Building, Room 223a
> Saemundargata 2
> 101 Reykjavík |Iceland
> Sími | Tel. +354 525 4361
> hpal at hi.is
> 
> Bestu kveðjur,
> Hildur
> 
> Hildur Bjarnadóttir verkefnisstjóri
> Viðskiptafræðideild og hagfræðideild
> Gimli v/Sæmundargötu, Háskóla Íslands
> s: 5255861
> fax: 5526806
 
 




More information about the Vid-stund mailing list