[Vid-stund] Próftaflan í vor (24. apríl - 9. maí)

Hildur Bjarnadóttir hildurb at hi.is
Wed Jan 17 15:19:50 GMT 2018


Sæl og gleðilegt nýtt ár!
Prófstjóri hefur hafið vinnu við próftöflu vormisseris og áætlar að birta 
hana á netinu í síðustu viku janúar, sjá meðfylgjandi frá prófstjóra:

"Ágæta samstarfsfólk!

Hvet ykkur til að ganga úr skugga um að námskeið ykkar séu merkt inn á 
próftöflu prófstjóra, þ.e. ef halda á í þeim próf á tímabilinu 24. apríl 
til 9. maí.

Í viðhengi er skrá þar sem hægt er að sjá "ný" námskeið á próftöflu, þ.e. 
þau sem eru á töflu 2018 en voru ekki 2017 (flipinn "2018 EN EKKI 2017").

Í öðrum flipa ("2017 EN EKKI 2018") eru þau námskeið sem voru á 
vortöflunni 2017 en eru ekki á núverandi próftöflu.

Vona að þetta auðveldi ykkur yfirferð próftöflunnar. Fyrstu drög munu 
birtast í þessari viku, á morgun eð hinn, og svo verður fínpússað og 
stefnt á að endanleg gerð verði tilbúin föstudaginn 26. janúar.

Minni á að mikilvægt er að námskeið hvorki vanti né að þeim sé ofaukið á 
töflu. 

Huga þarf sérstaklega að þeim tví- og þríburanámskeiðum sem eiga að 
fylgjast að.

Almennt er ekki tekið við óskum um ákveðna prófdaga. Hins vegar er tekið 
við óskum um hvort próf eigi að vera í apríl (5 prófdagar) eða maí (6 
prófdagar). Séu óskir um ákveðna innbyrðisröð prófa er mikilvægt að koma 
þeim á framfæri sem fyrst.

Kveðja,
Hreinn"


Prófaskrifstofa kennslusviðs | Central Examination Office
Hreinn Pálsson
Prófstjóri | Director of Examinations

Háskóli Íslands | University of Iceland
Aðalbygging | Main Building, Room 223a
Saemundargata 2
101 Reykjavík |Iceland
Sími | Tel. +354 525 4361
hpal at hi.is

Bestu kveðjur,
Hildur

Hildur Bjarnadóttir verkefnisstjóri
Viðskiptafræðideild og hagfræðideild
Gimli v/Sæmundargötu, Háskóla Íslands
s: 5255861
fax: 5526806
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20180117/11426823/attachment-0001.html>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 2183 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20180117/11426823/attachment-0001.gif>
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: Undirb?ningur pr?ft?flu.xls
Type: application/vnd.ms-excel
Size: 204288 bytes
Desc: not available
URL: <http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20180117/11426823/attachment-0001.xls>


More information about the Vid-stund mailing list