[Vid-stund] Doktorsvörn Friðriks Larsen föstudaginn 31. janúar
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Tue Jan 28 12:19:48 GMT 2014
Föstudaginn 31. janúar ver Friðrik Larsen doktorsritgerð sína, Positive
Power: The Untapped Potential of Branding the Electricity Sector. Vörnin
fer fram á ensku í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 14:00 og er öllum opin.
Andmælendur eru Dr. Anne Rindell, Dr. Hörður Arnarson og Dr. Nick Lee.
Daði Már Kristófersson, forseti Félagsvísindasviðs, stjórnar athöfninni.
Aðalleiðbeinandi var Dr. Ingjaldur Hannibalsson en í doktorsnefnd sátu
einnig Dr. Christian Grönroos og Dr. Þórhallur Guðlaugsson.
Í doktorsritgerð Friðriks er skilgreindur fræðilegur grundvöllur fyrir
greiningu og skilningi á vörumerkjastjórnun á smásölumarkaði fyrir
rafmagn. Veitt er innsýn í markað sem hefur hvorki verið markaðs- né
viðskiptavinadrifinn í sögulegu samhengi en hefur orðið að bregðast við
breyttum aðstæðum. Fræðilegum grundvallarspurningum um vörumerkjastjórnun
á rafmagnsmarkaði er svarað, en niðurstöðurnar má jafnframt heimfæra á
aðra hrávörumarkaði.
Hagnýti hluti rannsóknarinnar er tileinkaður markaði sem ber einkenni
einokunar fyrri tíðar og lýtur stífum reglugerðum. Lagður er grundvöllur
fyrir stjórnendur til að gera stöðumat svo ákvarða megi hvert skal stefna
bæði í stjórnunarlegu tilliti og út frá vörumerkjafræðunum. Um er að ræða
grundvallarþætti sem bæði eru almenns eðlis, þ.e. sem eru svipaðir á öllum
mörkuðum sem rannsakaðir voru, og þætti sem eru sérstakir fyrir hvern
markað.
Friðrik Larsen er fæddur á Selfossi 2. maí 1969. Friðrik á tvo syni, Elías
Ými Larsen f. 1997 og Leó Stein Larsen f. 2000. Starfsferilinn hóf Friðrik
með rekstri eigin fyrirtækis, Brosi auglýsingavörum, en hefur kennt á
háskólastigi á Íslandi og víðar síðan 2006. Samhliða því hefur hann komið
að stofnun og rekstri ýmissa fyrirtækja, setið í stjórnum fyrirtækja og
starfað við rekstrarráðgjöf. Friðrik er formaður Ímark.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140128/e87b80f3/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 101631 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140128/e87b80f3/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140128/e87b80f3/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list