Föstudaginn 31. janúar ver Friðrik Larsen doktorsritgerð
sína, Positive Power: The Untapped Potential of Branding the Electricity
Sector. Vörnin fer fram á ensku í Hátíðasal Háskóla Íslands kl. 14:00
og er öllum opin.

Andmælendur eru Dr. Anne Rindell, Dr. Hörður
Arnarson og Dr. Nick Lee. Daði Már Kristófersson, forseti
Félagsvísindasviðs, stjórnar athöfninni.

Aðalleiðbeinandi var Dr. Ingjaldur Hannibalsson en í doktorsnefnd
sátu einnig Dr. Christian Grönroos og Dr. Þórhallur Guðlaugsson.

Í doktorsritgerð Friðriks er skilgreindur fræðilegur grundvöllur fyrir
greiningu og skilningi á vörumerkjastjórnun á smásölumarkaði fyrir rafmagn.
Veitt er innsýn í markað sem hefur hvorki verið markaðs- né viðskiptavinadrifinn
í sögulegu samhengi en hefur orðið að bregðast við breyttum aðstæðum. Fræðilegum
grundvallarspurningum um vörumerkjastjórnun á rafmagnsmarkaði er svarað,
en niðurstöðurnar má jafnframt heimfæra á aðra hrávörumarkaði.

Hagnýti hluti rannsóknarinnar er tileinkaður markaði sem ber einkenni einokunar
fyrri tíðar og lýtur stífum reglugerðum. Lagður er grundvöllur fyrir stjórnendur
til að gera stöðumat svo ákvarða megi hvert skal stefna bæði í stjórnunarlegu
tilliti og út frá vörumerkjafræðunum. Um er að ræða grundvallarþætti sem
bæði eru almenns eðlis, þ.e. sem eru svipaðir á öllum mörkuðum sem rannsakaðir
voru, og þætti sem eru sérstakir fyrir hvern markað.

Friðrik Larsen er fæddur á Selfossi 2. maí 1969. Friðrik á tvo syni, Elías
Ými Larsen f. 1997 og Leó Stein Larsen f. 2000. Starfsferilinn hóf Friðrik
með rekstri eigin fyrirtækis, Brosi auglýsingavörum, en hefur kennt á háskólastigi
á Íslandi og víðar síðan 2006. Samhliða því hefur hann komið að stofnun
og rekstri ýmissa fyrirtækja, setið í stjórnum fyrirtækja og starfað við
rekstrarráðgjöf. Friðrik er formaður Ímark.

Elísa Jóhannsdóttir

Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild

Netfang: ej@hi.is