[Vid-stund] Lærdómur alþjóðasamfélagsins af bankahruninu á Íslandi

Elísa Jóhannsdóttir ej at hi.is
Thu Jan 9 14:35:35 GMT 2014


?Lærdómur alþjóðasamfélagsins af bankahruninu á Íslandi"
Guðrún Johnsen flytur fyrirlestur í tilefni af útkomu bókar hennar 
Bringing Down the Banking System; Lessons from Iceland. 

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands býður öllum áhugasömum að vera 
viðstödd kynningu Guðrúnar Johnsen á efni bókarinnar í Hátíðasal Háskóla 
Íslands þann 16. janúar næstkomandi. 

Þriðja stærsta gjaldþrot sögunnar varð á Íslandi árið 2008 við hrun 
þriggja stærstu banka Íslands, í sögu nútímahagfræði var það jafnframt 
stærsta gjaldþrot bankakerfis í heiminum miðað við verga landsframleiðslu. 


Hvernig gat Ísland byggt upp hlutfallslega stærra bankakerfi en Sviss á 
innan við tíu árum? Hvernig stóð á því að stjórnendur bankanna létu 
bankakerfið stækka svona hratt? Hvernig náðu félög og fyrirtæki peningum 
út úr bankakerfinu? Af hverju var þetta ekki stöðvað? 

Í bókinni Bringing Down the Banking System rekur Guðrún Johnsen söguna af 
risi og falli íslenska bankakerfisins, segir frá niðurstöðum 
rannsóknarnefndar Alþingis um skaðleg áhrif af krosseignatengslum 
eignarhaldsfélaga og ræðir hvaða lærdóm við getum dregið af bankahruninu.

Guðrún Johnsen er lektor í fjármálum við Viðskiptafræðideild Háskóla 
Íslands, hún var starfsmaður rannsóknarnefndar Alþingis á árunum 2009-2010 
og er varaformaður í stjórn Arion banka.

Fundurinn um efni bókarinnar verður í Hátíðasal Háskóla Íslands 
fimmtudaginn 16. janúar frá kl. 12 til 14.


Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140109/f76db89c/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140109/f76db89c/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list