„Lærdómur alþjóðasamfélagsins af bankahruninu
á Íslandi"

Guðrún Johnsen flytur fyrirlestur í
tilefni af útkomu bókar hennar Bringing Down the Banking System; Lessons
from Iceland.

Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
býður öllum áhugasömum að vera viðstödd kynningu Guðrúnar Johnsen á efni
bókarinnar í Hátíðasal Háskóla Íslands þann 16. janúar næstkomandi.

Þriðja stærsta gjaldþrot sögunnar varð
á Íslandi árið 2008 við hrun þriggja stærstu banka Íslands, í sögu nútímahagfræði
var það jafnframt stærsta gjaldþrot bankakerfis í heiminum miðað við verga
landsframleiðslu.

Hvernig gat Ísland byggt upp hlutfallslega
stærra bankakerfi en Sviss á innan við tíu árum? Hvernig stóð á því að
stjórnendur bankanna létu bankakerfið stækka svona hratt? Hvernig náðu
félög og fyrirtæki peningum út úr bankakerfinu? Af hverju var þetta ekki
stöðvað?

Í bókinni Bringing Down the Banking
System rekur Guðrún Johnsen söguna af risi og falli íslenska bankakerfisins,
segir frá niðurstöðum rannsóknarnefndar Alþingis um skaðleg áhrif af krosseignatengslum
eignarhaldsfélaga og ræðir hvaða lærdóm við getum dregið af bankahruninu.

Guðrún Johnsen er lektor í fjármálum
við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands, hún var starfsmaður rannsóknarnefndar
Alþingis á árunum 2009-2010 og er varaformaður í stjórn Arion banka.

Fundurinn um efni bókarinnar verður
í Hátíðasal Háskóla Íslands fimmtudaginn 16. janúar frá kl. 12 til 14.

Elísa Jóhannsdóttir

Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild

Netfang: ej@hi.is