[Vid-stund] Málstofa: Heimilisfestarhugtakið
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Thu Feb 20 14:55:08 GMT 2014
Ásmundur G. Vilhjálmsson heldur erindið ?Afmörkun á skattlagningarvaldi
Íslands þegar menn eiga í hlut? á málstofu Viðskiptafræðideildar.
Allir menn sem heimilisfastir eru í landi eru skyldir til að greiða skatt
af heildartekjum sínum óháð tekjulind. Afmörkun þessara manna er
gríðarlega þýðingarmikil fyrir ríki þar sem velferð ríkisins fer að nokkru
leyti eftir fjölda skattskyldra manna.
Í erindinu verður fjallað um það hvernig þjóðir afmarka skattlagningarvald
sitt þegar einstaklingar eiga í hlut. Hvenær skattskyldan stofnast við
flutning til landsins og hvenær hún fellur niður eftir flutning af landi
brott. Er nóg að fella aðeins niður lögheimilið til að sleppa við skatt
eða verður einstaklingurinn að flytja varanlega úr landi?
Erindinu lýkur á spurningunni um hvort einstaklingur geti verið
heimilisfastur samtímis í tveimur ríkjum. Ef ekki, til hvaða úrræða er þá
unnt grípa til að skera úr um hvoru landinu viðkomandi er tengdari.
Ásmundur G. Vilhjálmsson er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140220/552e338e/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 108125 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140220/552e338e/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140220/552e338e/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list