Ásmundur G. Vilhjálmsson heldur erindið „Afmörkun
á skattlagningarvaldi Íslands þegar menn eiga í hlut“ á málstofu Viðskiptafræðideildar.

Allir menn sem heimilisfastir eru í landi eru skyldir til
að greiða skatt af heildartekjum sínum óháð tekjulind. Afmörkun þessara
manna er gríðarlega þýðingarmikil fyrir ríki þar sem velferð ríkisins fer
að nokkru leyti eftir fjölda skattskyldra manna.

Í erindinu verður fjallað um það hvernig þjóðir afmarka skattlagningarvald
sitt þegar einstaklingar eiga í hlut. Hvenær skattskyldan stofnast við
flutning til landsins og hvenær hún fellur niður eftir flutning af landi
brott. Er nóg að fella aðeins niður lögheimilið til að sleppa við skatt
eða verður einstaklingurinn að flytja varanlega úr landi?

Erindinu lýkur á spurningunni um hvort einstaklingur geti verið heimilisfastur
samtímis í tveimur ríkjum. Ef ekki, til hvaða úrræða er þá unnt grípa til
að skera úr um hvoru landinu viðkomandi er tengdari.

Ásmundur G. Vilhjálmsson er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.

Elísa Jóhannsdóttir

Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild

Netfang: ej@hi.is