[Vid-stund] Málstofa Hagfræðideildar á föstudag
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Tue Feb 11 15:33:15 GMT 2014
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir flytur fyrirlesturinn ?Hvað ræður samhengi
tekna og heilsu? Niðurstöður frá 26 Evrópulöndum? á málstofu
Hagfræðideildar.
Markmið ríkisrekinnar heilbrigðisþjónustu er almennt ekki einungis að
framleiða heilsu heldur einnig að minnka breytileika í heilsu eftir
félags- og efnahagslegri stöðu.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um samband heilsu og tekna í 26
Evrópulöndum og rætt hverjir ákvörðunarþættir ójöfnuðar eru og hvernig
mynstur á milli landa eru með tilliti til mismunandi menningar, stofnana-
og félagslegs umhverfis.
Bæði hlutfallslegir og algildir samþjöppunarstuðlar heilsu eru reiknaðir
og notaðir sem mælikvarðar á tekjutengdan ójöfnuð í heilsu. Ennfremur er
heilsuójöfnuður í hverju landi hlutaður niður í ákvörðunarþætti og
samanburður á milli landa gerður til þess að varpa ljósi á hugsanleg áhrif
umlykjandi aðstæðna.
Niðurstöður sýna að tekjutengdan heilsuójöfnuð þeim efnameiri í vil er að
finna í öllum 26 löndunum sem til skoðunar voru. Niðurstöðurnar benda til
þess að stofnanaumhverfi skýri þennan mun að einhverju leyti tekjutengdan
heilsuójöfnuð.
Tinna Laufey Ásgeirsdóttir er lektor í heilsuhagfræði við Hagfræðideild.
Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140211/7670ef9b/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 100183 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140211/7670ef9b/attachment-0002.jpe
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140211/7670ef9b/attachment-0003.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list