Tinna Laufey Ásgeirsdóttir flytur fyrirlesturinn
„Hvað ræður samhengi tekna og heilsu? Niðurstöður frá 26 Evrópulöndum“
á málstofu Hagfræðideildar.

Markmið ríkisrekinnar heilbrigðisþjónustu er almennt ekki einungis að framleiða
heilsu heldur einnig að minnka breytileika í heilsu eftir félags- og efnahagslegri
stöðu.

Í fyrirlestrinum verður fjallað um samband heilsu og tekna í 26 Evrópulöndum
og rætt hverjir ákvörðunarþættir ójöfnuðar eru og hvernig mynstur á milli
landa eru með tilliti til mismunandi menningar, stofnana- og félagslegs
umhverfis.

Bæði hlutfallslegir og algildir samþjöppunarstuðlar heilsu eru reiknaðir
og notaðir sem mælikvarðar á tekjutengdan ójöfnuð í heilsu. Ennfremur er
heilsuójöfnuður í hverju landi hlutaður niður í ákvörðunarþætti og samanburður
á milli landa gerður til þess að varpa ljósi á hugsanleg áhrif umlykjandi
aðstæðna.

Niðurstöður sýna að tekjutengdan heilsuójöfnuð þeim efnameiri í vil er
að finna í öllum 26 löndunum sem til skoðunar voru. Niðurstöðurnar benda
til þess að stofnanaumhverfi skýri þennan mun að einhverju leyti tekjutengdan
heilsuójöfnuð.

Tinna Laufey Ásgeirsdóttir er lektor í heilsuhagfræði við Hagfræðideild.

Elísa Jóhannsdóttir

Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild

Netfang: ej@hi.is