[Vid-stund] Hádegisfundur: Áhrifamiðaðar og samfélagslega framtaksfjárfestingar

Elísa Jóhannsdóttir ej at hi.is
Tue Feb 4 13:10:17 GMT 2014


Pieter Oostlander, formaður European Venture Philanthropy Association, mun 
kynna stefnu samtakanna.

Áhrifamiðaðar fjárfestingar (Impact investment) njóta sífellt meiri 
vinsælda. Sumir telja að þær eigi á hættu að verða tískufyrirbrigði. En 
hvað eru áhrifamiðaðar fjárfestingar? Hvað eru þær ekki? Og hvernig 
tengjast þær samfélagslegum framtaksfjárfestingum?

Pieter Oostlander er einn af frumkvöðlunum á sviði samfélagslegra 
framtaksfjárfestinga í Evrópu (e. Venture Philantropy) og hefur starfað 
við þær í næstum áratug. Hann mun kynna þess tegund fjárfestinga, ræða 
helstu hugtök og segja frá raunverulegum samfélagslega hagkvæmum verkefnum 
sem veita áhrifamiðuðum fjárfestum innblástur.

Oostlander er jafnframt framkvæmdastjóri Shaerpa, sem er áhrifamiðaður 
sjóður. Í framhaldi af kynningu hans mun Yvette Go, einn af 
fjárfestingarstjórum Shaerpa, segja frá nokkrum verkefnum á 
fjárfestingarlista sjóðsins og skýra greiningar- og ákvörðunarferli hans 
sem að mörgu leyti er dæmigert fyrir áhrifamiðaða sjóði.

Erindið verður flutt á ensku.



Elísa Jóhannsdóttir
Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140204/bddd391f/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 105193 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140204/bddd391f/attachment-0002.jpe 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 29341 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140204/bddd391f/attachment-0003.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list