[Vid-stund] Minni á: Málstofa í dag kl. 12
Elísa Jóhannsdóttir
ej at hi.is
Tue Feb 4 08:01:30 GMT 2014
Ég minni á málstofu á vegum Viðskiptafræðideildar í dag kl. 12 í HT-101 á Háskólatorgi.
Allir velkomnir
Ásmundur G. Vilhjálmsson flytur erindið „EES-samningurinn og íslenskur skattaréttur“.
Með samningi sem undirritaður var í Opertó í Portúgal 2. maí 1992, varð Ísland aðili að evrópska efnahagssvæðinu frá og með 1. jan. 1994. Samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið opnaði dyrnar að innri markaði Evrópusambandsins fyrir Ísland. Til að greiða fyrir viðskiptum sín á milli ákváðu aðildarríkin að stuðla að samræmingu á löggjöf landanna á sviði verslunar með það að markmiði að koma á fót einsleitum innri markaði þar sem allir væru jafnir og frjálsir að för.
Rétturinn til að ákveða gjöld og skatta er undanskilinn einsleitnikröfunni. Eigi að síður var öllum ljóst að álögurnar mættu ekki mismuna erlendum ríkisborgurum sem kæmu hingað til lands eða hindra að innlendir aðilar gætu nýtt sér fjórfrelsið með beinum eða óbeinum hætti við flutning af landi brott. Í fyrirlestrinum verður gerð grein fyrir þeim áhrifum sem fjórfrelsið hefur haft á innlendar skattareglur, einkum fyrir tilstuðlan Evrópudómstólsins og EFTA-dómstólsins svo og hvað enn þá sé eftir að gera til svo að einsleitni kröfunni sé fullnægt.
Ásmundur G. Vilhjálmsson er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands.
>
> Elísa Jóhannsdóttir
> Markaðs- og kynningarstjóri, Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild
> Netfang: ej at hi.is
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: A?smundur.jpg
Type: image/jpeg
Size: 71498 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20140204/925469cd/attachment-0001.jpg
More information about the Vid-stund
mailing list