[Vid-stund] Á MORGUN: Stjórnunarstraumar 21. aldar - þriðjudaginn 8. maí kl. 12-13 í HT-101

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon May 7 16:10:59 GMT 2012


Stjórnunarstraumar 21. aldar 
Ingi Rúnar Eðvarðsson, prófessor við Viðskiptafræðideild heldur erindi. 
Þriðjudaginn 8. maí, kl. 12-13 
Háskólatorg, HT-101 

Þriðjudaginn 8. maí heldur Ingi Rúnar Eðvarðsson erindi á málstofu 
Viðskiptafræðideildar undir yfirskriftinni Stjórnunarstraumar 21. aldar. 

Margar þær stjórnunaraðferðir sem stuðst er við í fyrirtækjum og stofnunum 
um þessar mundir eiga upptök sín á síðustu öld. Í málstofunni verður því 
velt upp hvort þær henti við aðstæður sem ríkja á 21. öld. Hvaða 
breytingar hafa orðið í atvinnu- og þjóðlífi sem gæti haft áhrif á 
stjórnunarhætti fyrirtækja? Fjallað verður um kenningar nokkurra 
fræðimanna sem telja að breytinga sé þörf í stjórnunarfræðum. 
 
Ingi Rúnar Eðvarðsson er prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120507/d74cba66/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 105101 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120507/d74cba66/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list