[Vid-stund] Fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarútvegs - Miðvikudaginn 9. maí kl. 8:30-16:30 í Öskju, N-132

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon May 7 14:34:21 GMT 2012


Fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarútvegs

Tímarit um viðskipti og efnahagsmál stendur fyrir ráðstefnu um áhrif 
fiskveiðistjórnunar á sjávarútveg og tengdar greinar.

Lagaleg umgjörð fiskveiða við Ísland, einkum fiskveiðistjórnunarkerfið, er 
í deiglunni. Á ráðstefnunni verður fjallað um fiskveiðistjórnun á breiðum 
grunni og áhrif hennar á framtíð sjávarútvegs, með áherslu á áður ókönnuð 
áhrif á tengda atvinnustarfsemi og samfélagið í viðara samhengi.

Hvenær: Miðvikudaginn 9. maí, kl. 8:30-16:30
Hvar: Háskóli Íslands, Askja, N-132

08:30  Setning
08:40  Helgi Áss Grétarsson: Kvótakerfi sem lagaleg og efnahagsleg 
stofnun.
           Kristín Haraldsdóttir: Frumvarp til laga um stjórn fiskveiða í 
ljósi jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.
           Lúðvík Elíasson: Um hvað snúast lög um stjórn fiskveiða?
10:10  Kaffihlé
10:30  Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra: Auðlind í sameign 
þjóðar.
           Þóroddur Bjarnason: Fiskveiðistjórnun og framtíð sjávarbyggða.
           Þór Sigfússon: Íslenski sjávarklasinn. Það fiskast best á 
markmiðum!
           Þórir Sigurðsson: Afleiðingar stjórnlausra fiskveiða og 
fjármála.
12:30  Hádegishlé
13:10  Ragnar Árnason: Alþjóðleg samkeppnisstaða íslensks sjávarútvegs.
           Þórólfur Matthíasson: Áhrif veiðigjalds á fjárhagsskipan 
sjávarútvegsfyrirtækja
           Birgir Þór Runólfsson: Skipulag fiskveiða og arðsköpun; hver 
eru tengslin?
14:40  Kaffihlé
15:00  Níels Einarsson: Fiskveiðiréttindi, fjármálaafurðir og félagslegt 
réttlæti í sjávarútvegi.
           Einar Svansson og Stefán Kalmansson: Greining á íslenskum 
sjávarútvegi út frá tveimur leiðandi kenningum.
           Ögmundur Knútsson og Daði Már Kristófersson: Áhrif 
fiskveiðistjórnunar á virðiskeðju íslensks bolfisks.
16:30  Ráðstefnuslit

Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir.

-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120507/3f8508b4/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 151715 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120507/3f8508b4/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list