[Vid-stund] Marc Lavoie - Samspil raunhagkerfis og peningakerfis frá póst- Keynesískum sjónarhóli - Föstudaginn 4. maí kl. 12:00-13:30 í Lögbergi, L-101
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Wed May 2 11:05:43 GMT 2012
Samspil raunhagkerfis og peningakerfis frá póst- Keynesískum sjónarhóli
Föstudaginn 4. maí kl. 12:00-13:30 í Lögbergi, L-101
Fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar og Félags viðskiptafræðinga og
hagfræðinga.
Afstaða póst-Keynesískra hagfræðinga til margra af helstu álitamálum
hagfræðinnar er í mikilvægum atriðum frábrugðin því nýklassíska
sjónarhorni sem hefur verið ríkjandi í hagstjórnarráðgjöf og kennslu
síðustu áratugi. Má þar nefna verðmyndun, tekjudreifingu, hagvöxt,
atvinnumál og hagstjórn. Í fyrirlestrinum fjallar Marc Lavoie um samspil
raunhagkerfis og peningakerfis, sem er eitt af helstu ágreiningsefnum
póst-Keynesískrar og nýklassískrar hagfræði.
Fjármálakreppan sem nú herjar á hagkerfi heimsins setur þetta efni í
brennipunkt og gerir óhjákvæmilegt að taka afstöðu til kenninga
póst-Keynesista um innbyggðan óstöðugleika fjármálakerfa og afleiðingar
óheftrar útlánaþenslu.
Marc Lavoie er prófessor í hagfræði við Ottawa háskóla og höfundur fjölda
bóka, bókarkafla og fræðigreina.
Aðgangur ókeypis og allir velkomnir
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120502/64597ba4/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 148700 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120502/64597ba4/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list