Samspil raunhagkerfis og peningakerfis
frá póst- Keynesískum sjónarhóli

Föstudaginn 4. maí kl. 12:00-13:30 í
Lögbergi, L-101

Fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar
og Félags viðskiptafræðinga og hagfræðinga.

Afstaða póst-Keynesískra hagfræðinga
til margra af helstu álitamálum hagfræðinnar er í mikilvægum atriðum frábrugðin
því nýklassíska sjónarhorni sem hefur verið ríkjandi í hagstjórnarráðgjöf
og kennslu síðustu áratugi. Má þar nefna verðmyndun, tekjudreifingu, hagvöxt,
atvinnumál og hagstjórn. Í fyrirlestrinum fjallar Marc Lavoie um samspil
raunhagkerfis og peningakerfis, sem er eitt af helstu ágreiningsefnum póst-Keynesískrar
og nýklassískrar hagfræði.

Fjármálakreppan sem nú herjar á hagkerfi
heimsins setur þetta efni í brennipunkt og gerir óhjákvæmilegt að taka
afstöðu til kenninga póst-Keynesista um innbyggðan óstöðugleika fjármálakerfa
og afleiðingar óheftrar útlánaþenslu.

Marc Lavoie er prófessor í hagfræði
við Ottawa háskóla og höfundur fjölda bóka, bókarkafla og fræðigreina.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir