[Vid-stund] Ónákvæmni í verðbólguspám, verðbólgumarkmið og ávöxtunarviðmið lífeyrissjóða - föstudaginn 9. mars kl. 11 í fundarherbergi á 3. hæð í Odda.
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Mar 6 11:29:23 GMT 2012
Ónákvæmni í verðbólguspám, verðbólgumarkmið og ávöxtunarviðmið
lífeyrissjóða
Föstudaginn 9. mars kl. 11-12
Í fundarherbergi á 3. hæð í Odda
Föstudaginn 9. mars flytur Yngvi Harðarson erindi á málstofu
Hagfræðideildar undir yfirskriftinni Ónákvæmni í verðbólguspám,
verðbólgumarkmið og ávöxtunarviðmið lífeyrissjóða.
Greiningaraðilar á fjármálamarkaði birta spár um verðbólgu og um
mánaðarlega þróun vísitölu neysluverðs. Frá því að verðbólgumarkmið var
tekið upp hefur vanspá verðbólgu verið mun algengari en ofspá og á það
bæði við ársspár og mánaðarlegar spár sem gjarnan eru birtar nokkrum dögum
fyrir birtingu vísitölu neysluverðs.
Nákvæmni mánaðarlegra spáa minnkaði verulega á árinu 2008 en hefur aukist
á ný. Varpað er fram spurningunni um hvort áfram megi búast við aukinni
nákvæmni eða hvort ónákvæmni í spágerðinni breytist með kerfisbundnum
hætti og muni þá aukast á ný?
Þótt óverðtryggðar eignir vegi ekki þungt í eignasöfnum lífeyrissjóða þá
hafa sjóðirnir í auknum mæli fjárfest í óverðtryggðum skuldabréfum. Hefur
umræða verið um aukna þýðingu slíkra fjárfestinga í samhengi við mögulega
óverðtryggða skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs. Skv. reglugerð er núvirði
óverðtryggðra skuldabréfa með fasta vexti metið m.v. 3,5% ávöxtunarkröfu
auk verðbólguálags sem svarar til verðbólgumarkmiðs Seðlabanka Íslands á
hverjum tíma. Með hliðsjón af reynslunni frá upptöku verðbólgumarkmiðs
Seðlabankans er varpað fram spurningunni um hvort eðlilegt sé að nota það
í tengslum við núvirðingu og ef ekki hvað þá?
Yngvi Harðarson útskrifaðist með cand. oecon próf frá þjóðhagskjarna
Viðskipta- og hagfræðideildar árið 1986 og með MA próf í hagfræði frá
Queen?s University í Kanada árið 1988. Yngvi hefur starfað sem
hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun, hagfræðingur Félags Íslenskra iðnrekenda
og í fjármálageiranum. Þá var hann um tíma aðjúnkt við Viðskipta- og
hagfræðideild HÍ. Nú rekur Yngvi fyrirtækið Analytica ehf. sem er óháð
ráðgjafarfyrirtæki á sviði fjármála og áhættustýringar.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120306/2585c4ea/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 128636 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120306/2585c4ea/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list