Ónákvæmni í verðbólguspám, verðbólgumarkmið
og ávöxtunarviðmið lífeyrissjóða

Föstudaginn 9. mars kl. 11-12

Í fundarherbergi á 3. hæð í Odda

Föstudaginn 9. mars flytur Yngvi Harðarson
erindi á málstofu Hagfræðideildar undir yfirskriftinni Ónákvæmni í verðbólguspám,
verðbólgumarkmið og ávöxtunarviðmið lífeyrissjóða.

Greiningaraðilar á fjármálamarkaði birta
spár um verðbólgu og um mánaðarlega þróun vísitölu neysluverðs. Frá því
að verðbólgumarkmið var tekið upp hefur vanspá verðbólgu verið mun algengari
en ofspá og á það bæði við ársspár og mánaðarlegar spár sem gjarnan eru
birtar nokkrum dögum fyrir birtingu vísitölu neysluverðs.

Nákvæmni mánaðarlegra spáa minnkaði
verulega á árinu 2008 en hefur aukist á ný. Varpað er fram spurningunni
um hvort áfram megi búast við aukinni nákvæmni eða hvort ónákvæmni í spágerðinni
breytist með kerfisbundnum hætti og muni þá aukast á ný?

Þótt óverðtryggðar eignir vegi ekki
þungt í eignasöfnum lífeyrissjóða þá hafa sjóðirnir í auknum mæli fjárfest
í óverðtryggðum skuldabréfum. Hefur umræða verið um aukna þýðingu slíkra
fjárfestinga í samhengi við mögulega óverðtryggða skuldabréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs.
Skv. reglugerð er núvirði óverðtryggðra skuldabréfa með fasta vexti metið
m.v. 3,5% ávöxtunarkröfu auk verðbólguálags sem svarar til verðbólgumarkmiðs
Seðlabanka Íslands á hverjum tíma. Með hliðsjón af reynslunni frá upptöku
verðbólgumarkmiðs Seðlabankans er varpað fram spurningunni um hvort eðlilegt
sé að nota það í tengslum við núvirðingu og ef ekki hvað þá?

Yngvi Harðarson útskrifaðist með cand.
oecon próf frá þjóðhagskjarna Viðskipta- og hagfræðideildar árið 1986 og
með MA próf í hagfræði frá Queen‘s University í Kanada árið 1988. Yngvi
hefur starfað sem hagfræðingur á Þjóðhagsstofnun, hagfræðingur Félags Íslenskra
iðnrekenda og í fjármálageiranum. Þá var hann um tíma aðjúnkt við Viðskipta-
og hagfræðideild HÍ. Nú rekur Yngvi fyrirtækið Analytica ehf. sem er óháð
ráðgjafarfyrirtæki á sviði fjármála og áhættustýringar.