[Vid-stund] Á MORGUN: Eðli og umfang verðtryggingar erlendis - föstudaginn 2. mars kl. 11:00

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Thu Mar 1 12:37:07 GMT 2012


Eðli og umfang verðtryggingar erlendis. 

Föstudaginn 2. mars kl. 11:00 í fundarherbergi á 3. hæð í Odda, flytur 
Valdimar Ármann erindi á málstofu Hagfræðideildar undir yfirskriftinni 
Eðli og umfang verðtryggingar erlendis. 
  
Farið verður yfir sögu verðtryggingar í vestrænum ríkjum og uppbyggingu 
markaðar með verðtryggðar vörur. Raktar verða helstu ástæður vaxandi 
vinsælda verðtryggðs markaðar. Sýnd verða dæmi um skuldabréf og afleiður 
sem eru undirstöður markaðarins og hvernig vöruþróunin færðist frá 
nafnvöxtum og raunvöxtum yfir í hreina verðbólgu.  Farið verður yfir 
helstu aðila markaðar og hvert hlutverk banka er í að koma saman kaupendum 
og seljendum verðbólgu. 

Valdimar starfar hjá GAM Management hf. sem rekur verðbréfasjóði og 
fagfjárfestasjóði. Hann er útskrifaður hagfræðingur frá Háskóla Íslands og 
fjármálaverkfræðingur frá Háskólanum í Reading, Englandi. Valdimar hefur 
starfað hjá ABN AMRO í London við verðbólgutengdar afurðir frá 2003-2006 
og síðan í New York frá 2006-2008 hjá sama banka og síðast RBS. Starf hans 
var fólgið í þróun og hönnun verðbólgutengdra afurða ásamt miðlun, 
verðlagningu og áhættuvörnum á verðbólgutengdum afleiðum. Fyrst starfaði 
Valdimar hjá Búnaðarbankanum í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum. 

Allir velkomnir 


-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120301/0e7f2524/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 104456 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120301/0e7f2524/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list