Eðli og umfang verðtryggingar erlendis.

Föstudaginn 2. mars kl. 11:00 í fundarherbergi á 3. hæð í Odda, flytur
Valdimar Ármann erindi á málstofu Hagfræðideildar undir yfirskriftinni
Eðli og umfang verðtryggingar erlendis.

Farið verður yfir sögu verðtryggingar í vestrænum ríkjum og uppbyggingu
markaðar með verðtryggðar vörur. Raktar verða helstu ástæður vaxandi vinsælda
verðtryggðs markaðar. Sýnd verða dæmi um skuldabréf og afleiður sem eru
undirstöður markaðarins og hvernig vöruþróunin færðist frá nafnvöxtum og
raunvöxtum yfir í hreina verðbólgu.  Farið verður yfir helstu aðila
markaðar og hvert hlutverk banka er í að koma saman kaupendum og seljendum
verðbólgu.

Valdimar starfar hjá GAM Management hf. sem rekur verðbréfasjóði og fagfjárfestasjóði.
Hann er útskrifaður hagfræðingur frá Háskóla Íslands og fjármálaverkfræðingur
frá Háskólanum í Reading, Englandi. Valdimar hefur starfað hjá ABN AMRO
í London við verðbólgutengdar afurðir frá 2003-2006 og síðan í New York
frá 2006-2008 hjá sama banka og síðast RBS. Starf hans var fólgið í þróun
og hönnun verðbólgutengdra afurða ásamt miðlun, verðlagningu og áhættuvörnum
á verðbólgutengdum afleiðum. Fyrst starfaði Valdimar hjá Búnaðarbankanum
í afleiðum og gjaldeyrisviðskiptum.

Allir velkomnir