[Vid-stund] Á MORGUN: Málstofa í Viðskiptafræðideild: Viðskiptalíkön - ný rannsóknareining, HT-101, kl. 12-13

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Mon Jan 23 15:29:51 GMT 2012


Málstofa í Viðskiptafræðideild: Viðskiptalíkön - ný rannsóknareining
HT-101, þriðjudaginn 24. jan. kl. 12-13

Í erindinu verður fjallað um viðskiptalíkön sem nýja rannsóknareiningu 
innan sviðs viðskiptafræða. Fram til þessa hafa fáar rannsóknir verið 
gerðar á viðskiptalíkönum fyrirtækja, en vaxandi áhugi er á efninu. 
Samstaða er meðal fræðimanna um að þetta sé verðug og mikilvæg 
rannsóknareining, ekki síst í ljósi velgengni margra fyrirtækja sem 
innleitt hafa ný viðskiptalíkön. Hagnýtt gildi slíkra rannsókna getur 
komið fram í nýrri þekkingu á smíði viðskiptalíkana sem skapa fyrirtækjum 
samkeppnisforskot.

Eiríkur Hilmarsson er lektor við Viðskiptafræðideild. 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120123/b045c668/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 132614 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120123/b045c668/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list