Málstofa í Viðskiptafræðideild: Viðskiptalíkön
- ný rannsóknareining

HT-101, þriðjudaginn 24. jan. kl. 12-13

Í erindinu verður fjallað um viðskiptalíkön
sem nýja rannsóknareiningu innan sviðs viðskiptafræða. Fram til þessa hafa
fáar rannsóknir verið gerðar á viðskiptalíkönum fyrirtækja, en vaxandi
áhugi er á efninu. Samstaða er meðal fræðimanna um að þetta sé verðug og
mikilvæg rannsóknareining, ekki síst í ljósi velgengni margra fyrirtækja
sem innleitt hafa ný viðskiptalíkön. Hagnýtt gildi slíkra rannsókna getur
komið fram í nýrri þekkingu á smíði viðskiptalíkana sem skapa fyrirtækjum
samkeppnisforskot.

Eiríkur Hilmarsson er lektor við Viðskiptafræðideild.