[Vid-stund] Árangursrík stjórnun - þriðjudaginn 21. febrúar kl.12-13 á Háskólatorgi, HT-101
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Fri Feb 17 18:34:10 GMT 2012
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar
Árangursrík stjórnun
Háskólatorg, HT-101, þriðjudaginn 21. feb. kl. 12-13
Á málstofu Viðskiptafræðideildar þ. 1. nóvember s.l. fjallaði fyrirlesari
um aðdragandann að því að Henry Mintzberg, í bókinni Managing (2009), fram
nýtt líkan yfir stjórnun og verkefni stjórnandans. Rauði þráðurinn í þessu
líkani og nálgun að starfi stjórnandans er að það snúist að verulegu leyti
um innsýn, kunnáttu og virkni stjórnandans í því samhengi sem
stjórnunarstarfið spannar. Stjórnun er útskýrð út frá þrenns konar
þyngdarpunktum: reynslu, list og vísindum. Mintzberg lýsir því að
stjórnendur hafi tiltekna stjórnunarmáta (postures) í störfum sínum og að
þeir séu viðvarandi að glíma við tilteknar stjórnunarráðgátur. Að endingu
er vikið að ramma sem Mintzberg tilgreinir að geti verið stjórnendum
einhver vegvísir að árangursríkri stjórnun.
Runólfur Smári Steinþórsson er prófessor við Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120217/e6b2428b/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 129799 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120217/e6b2428b/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list