[Vid-stund] tilkynning til stundakennara

Kristín Klara Einarsdóttir kke at hi.is
Wed Aug 29 13:38:23 GMT 2012


Til allra kennara í Viðskiptafræðideild og Hagfræðideild:


Nú er nýtt Háskólaár að hefjast og öll starfsemi að fara í gang. Því er 
nauðsynlegt að fara að skipuleggja sig fyrir komandi skólaár. 

Við sem vinnum við þjónustuborðið í Gimli höfum núllað alla skilabakka þar 
sem fjöldi þeirra var kominn í óefni og margir bakkar ónotaðir. Af þessum 
sökum þurfa kennarar sem vilja að við tökum á móti skilaverkefnum fyrir þá 
að senda okkur tölvupóst á netfangið gimli.info at hi.is með upplýsingum um 
skiladaga yfir veturinn og fjölda nemenda í hverju námskeiði. Allir bakkar 
eru merktir kennara, ef fleiri en einn kennari er skráður fyrir 
námskeiðinu borgar sig að nöfn þeirra séu einnig merkt á bakkann. 

Endilega ítrekið við nemendur að nota sérstaka forsíðu á skilaverkefnin, 
sem má finna inni á heimasíðu þjónustuborðsins í Gimli 
http://www.hi.is/felagsvisindasvid/thjonustubord_i_gimli 

Athugið að nú fer í hönd annatími hjá starfsfólki sem vinnur við 
þjónustuborð í Gimli vegna ljósritunar og skönnunar og þurfa því kennarar 
og starfsmenn að gefa sér góðan tíma ef þeir þurfa að nota vélina hjá 
okkur. Ekki er hægt að lofa að verkefni verði kláruð innan þess dags sem 
þau berast og getur afgreiðslufrestur farið upp í nokkra daga, allt eftir 
álagi. Að því sögðu viljum við benda ykkur á að ljósritunarvélin  í Gimli 
er vinnutæki okkar og oft getur því verið betra fyrir ykkur að koma eftir 
að við lokum á daginn. 

Að lokum viljum við benda á að það má nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar 
og eyðublöð á heimasíðu okkar. 

Kveðja

Laufey Sigurðardóttir
B.Sc. Viðskiptafræði
Verkefnisstjóri
Gimli þjónustuborð
ls at hi.is gimli.info at hi.is
sími: 525-5870






















-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120829/dcfd7704/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 124243 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120829/dcfd7704/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list