Til allra kennara í Viðskiptafræðideild
og Hagfræðideild:

Nú er nýtt Háskólaár að hefjast og öll
starfsemi að fara í gang. Því er nauðsynlegt að fara að skipuleggja sig
fyrir komandi skólaár.

Við sem vinnum við þjónustuborðið í Gimli höfum núllað alla skilabakka
þar sem fjöldi þeirra var kominn í óefni og margir bakkar ónotaðir. Af
þessum sökum þurfa kennarar sem vilja að við tökum á móti skilaverkefnum
fyrir þá að senda okkur tölvupóst á netfangið gimli.info@hi.is með
upplýsingum um skiladaga yfir veturinn og fjölda nemenda í hverju námskeiði.
Allir bakkar eru merktir kennara, ef fleiri en einn kennari er skráður
fyrir námskeiðinu borgar sig að nöfn þeirra séu einnig merkt á bakkann.

Endilega ítrekið við nemendur að nota sérstaka forsíðu á skilaverkefnin,
sem má finna inni á heimasíðu þjónustuborðsins í Gimli http://www.hi.is/felagsvisindasvid/thjonustubord_i_gimli

Athugið að nú fer í hönd annatími hjá starfsfólki sem vinnur við þjónustuborð
í Gimli vegna ljósritunar og skönnunar og þurfa því kennarar og starfsmenn
að gefa sér góðan tíma ef þeir þurfa að nota vélina hjá okkur. Ekki er
hægt að lofa að verkefni verði kláruð innan þess dags sem þau berast og
getur afgreiðslufrestur farið upp í nokkra daga, allt eftir álagi. Að því
sögðu viljum við benda ykkur á að ljósritunarvélin  í Gimli er vinnutæki
okkar og oft getur því verið betra fyrir ykkur að koma eftir að við lokum
á daginn.

Að lokum viljum við benda á að það má nálgast ýmsar gagnlegar upplýsingar
og eyðublöð á heimasíðu okkar.

Kveðja

Laufey Sigurðardóttir

B.Sc. Viðskiptafræði

Verkefnisstjóri

Gimli þjónustuborð

ls@hi.is gimli.info@hi.is

sími: 525-5870