[Vid-stund] Doktorsvörn í Viðskiptafræðideild, í Hátíðasal, föstudaginn 27. apríl kl. 14

Bjargey Anna Guðbrandsdóttir bjargey at hi.is
Thu Apr 26 13:24:24 GMT 2012


Föstudaginn 27. apríl ver Þór Sigfússon doktorsritgerð sína "The strength 
and Empowerment of Weak ties in International New Ventures". 
Vörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla Íslands föstudaginn 27. apríl kl. 
14:00 og er öllum opin. Dr. Snjólfur Ólafsson, prófessor og 
varadeildarforseti Viðskiptafræðideildar, stjórnar athöfninni.

Andmælendur eru Dr. Per Servais og Dr. Vlad Vaiman.

Markmið rannsóknarinnar er að skoða tengslanet frumkvöðla í alþjóð­legum 
nýsköpunarfyrirtækjum og hvernig þeir skapa og nýta sér tengslanet til 
framgangs starfsemi sinnar. Þegar nýsköpunarfyrirtæki hyggjast hefja 
útflutning eykst mikilvægi tengsla­neta þar sem þekking frumkvöðlanna á 
starfsemi utan heimalandsins er oft takmörkuð. Í líkani, sem kynnt er, er 
hnykkt á mikilvægi þess að skoða ólíkan bakgrunn frumkvöðla og hvaða áhrif 
hann hefur á myndun tengsla þeirra. Þá er einnig í líkaninu bent á að 
staða atvinnugreinar á heimamarkaði geti haft áhrif á hvernig 
einstaklingar byggja upp sitt tengslanet, bæði innanlands og utan. Í 
rannsóknunum voru meðal annars skoðuð sérstaklega hugbúnaðar- og 
tæknifyrirtæki sem tengjast sjávarútvegi hérlendis.  Í kjölfar þeirra 
rannsókna var Íslenski sjávarklasinn settur á laggirnar sem hefur að 
markmiði að auka verðmæti með eflingu samskipta- og tengslaneta 
fyrirtækjanna. 

Í doktorsnefndinni sátu Dr. Ingjaldur Hannibalsson formaður, prófessor og 
deildarforseti Viðskiptafræðideildar Háskóla Íslands, Dr. Simon Harris 
prófessor við Edinborgarháskóla og Dr. Sylvie Chetty prófessor við 
Masseyháskóla á Nýja Sjálandi.

Þór Sigfússon fæddist í Vestmannaeyjum árið 1964.  Hann lauk MSc gráðu í 
hagfræði frá University of North Carolina árið 1993.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120426/47e408cd/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 163328 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20120426/47e408cd/attachment-0001.jpe 


More information about the Vid-stund mailing list