Föstudaginn 27. apríl ver Þór Sigfússon
doktorsritgerð sína "The strength and Empowerment of Weak ties in
International New Ventures".

Vörnin fer fram í Hátíðasal Háskóla
Íslands föstudaginn 27. apríl kl. 14:00 og er öllum opin. Dr. Snjólfur
Ólafsson, prófessor og varadeildarforseti Viðskiptafræðideildar, stjórnar
athöfninni.

Andmælendur eru Dr. Per Servais og Dr.
Vlad Vaiman.

Markmið rannsóknarinnar er að skoða
tengslanet frumkvöðla í alþjóð­legum nýsköpunarfyrirtækjum og hvernig þeir
skapa og nýta sér tengslanet til framgangs starfsemi sinnar. Þegar nýsköpunarfyrirtæki
hyggjast hefja útflutning eykst mikilvægi tengsla­neta þar sem þekking
frumkvöðlanna á starfsemi utan heimalandsins er oft takmörkuð. Í líkani,
sem kynnt er, er hnykkt á mikilvægi þess að skoða ólíkan bakgrunn frumkvöðla
og hvaða áhrif hann hefur á myndun tengsla þeirra. Þá er einnig í líkaninu
bent á að staða atvinnugreinar á heimamarkaði geti haft áhrif á hvernig
einstaklingar byggja upp sitt tengslanet, bæði innanlands og utan. Í rannsóknunum
voru meðal annars skoðuð sérstaklega hugbúnaðar- og tæknifyrirtæki sem
tengjast sjávarútvegi hérlendis.  Í kjölfar þeirra rannsókna var Íslenski
sjávarklasinn settur á laggirnar sem hefur að markmiði að auka verðmæti
með eflingu samskipta- og tengslaneta fyrirtækjanna.

Í doktorsnefndinni sátu Dr. Ingjaldur
Hannibalsson formaður, prófessor og deildarforseti Viðskiptafræðideildar
Háskóla Íslands, Dr. Simon Harris prófessor við Edinborgarháskóla og Dr.
Sylvie Chetty prófessor við Masseyháskóla á Nýja Sjálandi.

Þór Sigfússon fæddist í Vestmannaeyjum
árið 1964.  Hann lauk MSc gráðu í hagfræði frá University of North
Carolina árið 1993.