[Vid-stund] Á MORGUN: Lee Benham í Hátíðasal: Small Countires, Important Innovations. Miðvikudaginn 26. október kl. 12:00-13:30
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue Oct 25 11:27:04 GMT 2011
Small Countries, Important Innovations
Fyrirlestur á vegum Hagfræðideildar og Viðskiptafræðideildar í tilefni
sjötugsafmælis Þráins Eggertssonar
Hátíðasalur Háskóla Íslands,
Miðvikudaginn 26. október kl. 12:00-13:30
Í fyrirlestrinum fjallar prófessor Benham um framlag smáþjóða til
uppfinninga, en framlag Íslands og Íslendinga til uppfinninga er
hlutfallslega mjög stórt. Uppfinningar eru uppspretta hagvaxtar, og Benham
veltir fyrir sér þremur spurningum:
? Hvers vegna eru rætur uppfinninga ákaflega staðbundnar?
? Hvers vegna er ekki meira um uppfinningar þvert og breitt um
heiminn?
? Hvers vegna hafa hagfræðingar vanrækt að kanna þær aðstæður sem
leggja grunninn að uppfinningum?
Lee Benham er prófessor emeritus við hagfræðideild Washington University í
St. Louis og stjórnarmaður og kennari við Ronald Coase Institute.
Nóbelshafinn Ronald Coase setti á fót stofnunina sem við hann er kennd til
að þjálfa unga fræðimenn frá þróunarlöndunum í greiningu á skipulagi
hagkerfa. Lee Benham tók einnig þátt í því með Ronald Coase, Douglass
North, og Oliver Williamson, þremur Nóbelshöfum, að stofna samtökin
International Society for New Institutional Economics. Benham hefur
doktorspróf í hagfræði frá Stanford háskóla og var um árabil prófessor við
Viðskiptafræðideild Chicago háskóla. Benham hefur fengið ýmsar
viðurkenningar: Hann er talinn með í Who is Who in Economics: A
Biographical Dictionary of Major Economists 1700-1986; og hefur fengið
viðurkenningu Social Science Citation Index fyrir klassíska fræðiritgerð.
Sérgreinar Benhams eru vinnumarkaðshagfræði, heilsuhagfræði og nýja
stofnanahagfræðin.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111025/2aa447e3/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 202785 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20111025/2aa447e3/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list