[Vid-stund] Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Hverju þarf að breyta í kennslubókum í fjármálum og hagfræði í ljósi reynslu undanfarinna ára? Gylfi Magnússon á Háskólatorgi, HT-101. Þriðjudaginn 31. maí kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Thu May 26 09:19:01 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Hverju þarf að breyta í
kennslubókum í fjármálum og hagfræði í ljósi reynslu undanfarinna ára?
Hin alþjóðlega fjármálakrísa kom flestum í opna skjöldu og ýmsir hafa
talið það merki þess að þær fræðigreinar sem helst skýra slík fyrirbrigði,
hagfræði og fjármálafræði, hafi að einhverju marki brugðist.
Í fyrirlestrinum er þessi flötur á fjármálakrísunni skoðaður og hvaða
breytingar virðast líklegar og æskilegar á kennsluefni fyrir nemendur í
þessum fræðum í ljósi sviptinga undanfarinna ára. Sérstaklega er horft til
byrjendakennslu á háskólastigi.
Gylfi Magnússon er dósent í Viðskiptafræðideild Háskóla Íslands
Staður og stund:
Háskólatorg HT-101.
Þriðjudaginn 31. maí kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110526/ab48dab6/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 135230 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110526/ab48dab6/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list