[Vid-stund] Í DAG: Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Er traust til banka að aukast? Þórhallur Örn Guðlaugsson á Háskólatorgi, HT-101, þriðjudaginn 24. maí kl. 12-13
Bjargey Anna Guðbrandsdóttir
bjargey at hi.is
Tue May 24 10:07:19 GMT 2011
Málstofa á vegum Viðskiptafræðideildar: Er traust til banka að aukast?
Eins og kunnugt er dró verulega úr trausti til bankanna í kjölfar
bankahrunsins haustið 2008. Mælingar sem gerðar hafa verið frá
bankahruninu sýna að bönkunum gengur illa að byggja upp traust á nýjan
leik. Þrátt fyrir að dregið hafi verulega úr trausti til bankanna, hafa
mjög fáir skipt um banka. Nokkrar ástæður hafa verið nefndar fyrir þessu
og eru þær algengustu að bankakerfið í heild sinni hafi hrunið og því ekki
um aðra betri kosti að ræða. Getur verið að ástæðan fyrir því að fólk
skiptir ekki um banka sé sú að það treystir bankanum sínum betur en öðrum
bönkum? Á málstofunni fer Þórhallur yfir nýlega rannsókn á ímynd bankanna.
Sérstaklega verður fjallað um niðurstöður sem tengjast trausti.
Þórhallur Örn Guðlaugsson er dósent við Viðskiptafræðideild Háskóla
Íslands
Staður og stund:
Háskólatorg HT-101.
Þriðjudaginn 24. maí kl. 12-13
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110524/601819b0/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/jpeg
Size: 152589 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110524/601819b0/attachment-0001.jpe
More information about the Vid-stund
mailing list