[Vid-stund] Á MIÐVIKUDAG 23.MARS: Morgunverðarfundur kl. 8-10 "Árangur í skugga niðurskurðar-Hvernig má meta afköst og gæði í opinberum rekstri" á Grand hótel Reykjavík.

Ásta Möller astam at hi.is
Mon Mar 21 10:19:52 GMT 2011


Félag forstöðumanna ríkisstofnana, Félag stjórnsýslufræðinga og Stofnun 
stjórnsýslufræða og stjórnmála boða til 
morgunverðarfundar miðvikudaginn 23. mars kl. 8-10. 

Árangur í skugga niðurskurðar- 
Hvernig má meta afköst og gæði í opinberum rekstri? 
Alþjóðlegir mælikvarðar-Stefna stjórnvalda-Dæmi um aðferðir innlendra 
stofnana

Hefst með morgunverði kl. 8, dagskrá hefst kl. 8.30 og stendur til kl. 
10.00 á Grand hótel Reykjavík. 


Þátttökugjald er 3900,- morgunverður innifalinn.  Skráning HÉR 





Á undanförnum misserum hefur áhersla á niðurskurð og skipulagsbreytingar í 
opinberum rekstri yfirskyggt umræðu um árangur í rekstri opinberra 
stofnana.  Í kjölfar stefnu stjórnvalda um nýskipan í ríkisrekstri um og 
eftir síðustu aldamót voru innleiddar nýjar stjórnunaraðferðir og 
vinnubrögð í starfsemi stofnana ríkisins með áherslu á árangursstjórnun. 
Mat á árangri í starfi stofnana er nú sem fyrr er eitt mikilvægasta 
stjórntæki stjórnenda stofnana og fyrirtækja.  Fjármálalegar og faglegar 
upplýsingar frá sambærilegum stofnunum innanlands eða utanlands eru þar 
m.a. notaðar sem viðmiðun um árangur starfseminnar.  Mælikvarðar sem 
þróaðir hafa verið af viðurkenndum alþjóðlegum stofnunum reynast einnig 
mikilvægir til að meta árangur.   Á fundinum verður tekin staðan á 
hugmyndum um mat á árangri í rekstri ríkisstofnana og horft fram á veginn. 
  Ómar H. Kristmundsson prófessor mun ræða árangursmat frá fræðilegu 
sjónarhorni. Steinunn Halldórsdóttir stjórnsýslufræðingur hjá 
forsætisráðuneytinu mun ræða samhæfingarhlutverk stjórnvalda til að ná 
betri árangri í ríkisrekstri og Gunnar Björnsson, skrifstofustjóri hjá 
fjármálaráðuneytinu fjallar um kerfi alþjóðlega viðurkennda mælikvarða sem 
notaðir eru til að meta árangur í stjórnsýslunni sem heild og einstakra 
þátta hennar.    Að loknum framsögum verða panelumræður með þátttöku 
frummælenda, auk Maríu Heimisdóttur framkvæmdastjóra fjármálasviðs 
Landspítala,  Kristínar Lindu Árnadóttur, forstjóra Umhverfisstofnunar, 
Jóns Atla Benediktssonar aðstoðarrektors vísinda og kennslu við Háskóla 
Íslands .  Þau hafa sem stjórnendur unnið markvisst að því að bæta árangur 
í starfsemi sinna stofnana m.a. með hliðsjón af alþjóðlegum mælikvörðum. 

Fundarstjóri og stjórnandi umræðna er Ólöf Ýrr Atladóttir, 
ferðamálastjóri.   
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110321/3bd3c9fb/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 58752 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110321/3bd3c9fb/attachment-0001.gif 


More information about the Vid-stund mailing list