[Vid-stund] Minnt er á frest til 15.apríl til að skila ritrýndum greinum í 1. tölublað, 2011: Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit, sem kemur út í júní
Ásta Möller
astam at hi.is
Thu Mar 3 20:13:04 GMT 2011
Veftímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla er gefið út tvisvar á ári á
heimasíðu þess www.stjornmalogstjornsysla. Ritrýndar fræðigreinar hvers
árgangs eru gefnar út á prentuðu formi. Tilgangur tímaritsins er að gefa
út og gera aðgengilegt þverfræðilegt efni um rannsóknir á sviði
stjórnmála, stjórnsýslu og alþjóðamála með það fyrir augum að auka við
þekkingu og efla faglega umræðu á þessum sviðum á Íslandi. Ritrýndi hluti
tímaritsins gegnir hlutverki fræðitímarits í stjórnmála- og
stjórnsýslufræðum. Í veftímaritinu er stjórnmála- og
stjórnsýslufræðingum, félagsfræðingum, hagfræðingum, heimspekingum,
lögfræðingum, sagnfræðingum, viðskiptafræðingum og öðrum þeim er stunda
rannsóknir og skrifa um þau viðfangsefni gefinn kostur á að gera
rannsóknir sínar aðgengilegar og auka þannig fræðilega umfjöllun. Almennu
greinarnar fjalla um sömu viðfangsefni en eru opinn vettvangur. Í
vefritinu eru eftirtaldir efnisflokkar: ritrýndar fræðigreinar, greinar
almenns eðlis, bókadómar, frásagnir af stærri rannsóknarverkefnum kennara,
útdrættir úr lokaritgerðum háskólanema í stjórnmálafræðideild,
stjórnmála- og stjórnsýslufræðingatal. Félag stjórnmálafræðinga og Félag
stjórnsýslufræðinga hafa einnig tengingu á heimasvæði sitt á vefsvæðinu.
Samkvæmt mati Rannsóknasviðs H.Í. hingað til nær tímaritið fyrir ritrýndu
greinarnar 1. flokki í þeirra mati:?1. flokkur: Fagleg ritstjórn, stífar
formlegar kröfur, ítarleg fræðileg ritrýni (mögulegt mat á greinum m.v.
skala kjaranefndar 10 stig).?
Þegar hafa verið gefin út tíu tölublöð á vefnum og ritrýndar greinar
verið prentaðar og fáanlegar hjá Háskólaútgáfunni, helstu bókabúðum og
bókasöfnum. Einnig er hægt að gerast áskrifandi að prentaðri útgáfu af
ritrýndum greinum sem birtast í veftímaritinu og kemur hún út einu sinni á
ári. 6. árg. 2010 kemur út á næstu dögum og kostar áskrift 3800,- Gerast
áskrifandi. Upplýsingar um efni og höfunda 7. árg 2009 er hér
Minnum á frest 15. apríl nk. til að skila greinum í ritrýndan hluta
fyrra tölublaðs 2011:
Stjórnmál og stjórnsýsla -Veftímarit: www.stjornmalogstjornsysla.is
Ágæti viðtakandi.
Um leið og við bendum þér á vefrit okkar um Stjórnmál og stjórnsýslu, sem
er öllum opið á netinu viljum við minna á næsta útgáfudag ( júní 2011) og
skilafresti fyrir greinar í tímaritið Stjórnmál og stjórnsýsla-
veftímarit. Eru allir fræði- og fagmenn sem fást við efni er tengjast
stjórnmálum eða stjórnsýslu hvattir til að íhuga að nýta sér þennan
vettvang. Skilafrestur fyrir ritrýndar greinar er 15. apríl nk. (lengd
6-10 þús. orð), en greinar almenns eðlis 15. maí (lengd 4-10 þús. orð).
Allt efni vefritsins og leiðbeiningar til höfunda má sjá á:
www.stjornmalogstjornsysla.is
Ritstjórar ritrýnda hluta tímaritsins eru Arnar Þór Másson, MSc. og Dr.
Gunnar Helgi Kristinsson. Efni má senda ritstjórum á tölvupóstfang
veftímaritsins er stogst at hi.is Sjá nánari leiðbeiningar um uppsetningu og
frágang efnis á vef tímaritsins: www.stjornmalogstjornsysla.is.
Með bestu kveðjum frá ritstjórn,
Arnar Þór Másson M.Sc. í stjórnmálafræði
Gunnar Helgi Kristinsson Ph.D í stjórnmálafræði, ritstjóri
Ómar H Kristmundsson Ph.D i stjórnsýslufræðum
Margrét S. Björnsdóttir MA í félagsfræði og MPA
Haukur Arnþórsson, Ph.D, stjórnsýslufræðingur, vefritstjóri,
Ásta Möller, MPA, forstöðumaður stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála.
Í ráðgefandi ritstjórn eru:
Auðunn Arnórsson, MA í sagnfræði og stjórnmálafræði, og D.E.E.A í
Evrópufræðum
Baldur Þórhallsson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Birgir Hermannsson, Dr. fil í stjórnmálafræði
Brynhildur Ólafsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Davíð Logi Sigurðsson, MA í írskum fræðum og - stjórnmálum
Eiríkur Bergmann Einarsson, Cand.Scient. Pol. og doktor í stjórnmálafræði
Grétar Þór Eyþórsson, Ph.D. í stjórnmála- og stjórnsýslufræðum
Guðmundur Heiðar Frímannsson, Ph.D. í siðfræði
Guðni Th. Jóhannesson, Ph.D. í sagnfræði
Gústaf Adolf Skúlason, M.Sc. í milliríkjasamskiptum
Halldór Grönvold, MA í vinnumarkaðsfræðum
Hanna Birna Kristjánsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Hannes H. Gissurarson, D.Phil. í stjórnmálafræðum
Helga Jónsdóttir, cand. jur.
Helgi Skúli Kjartansson, cand.mag. í sagnfræði
Indriði H. Indriðason, Ph.D. í stjórnmálafræði
Jóhann M. Hauksson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Ph.D í upplýsingafræði
Magnús Pétursson, hagfræðingur
Ólafur Þór Gylfason M.Sc. í aðferða- og tölfræði
Ólafur Þ. Harðarson, Ph.D. í stjórnmálafræði
Ólafur Ísleifsson, M.Sc. í hagfræði
Ólafur Þ. Stephensen, M.Sc. í alþjóðastjórnmálum
Óli Jón Jónsson M.S. í evrópustjórnmálum
Ómar H. Kristmundsson, Ph.D. í stjórnsýslufræðum
Róbert Ragnarsson, MA í stjórnmálafræði
Silja Bára Ómarsdóttir, MA í alþjóðasamskiptum
Stefanía Óskarsdóttir Ph.D. í stjórnmálafræði
Steinunn Halldórsdóttir, EMPA í stjórnsýslufræðum
Svala Ísfeld Ólafsdóttir, cand. jur., diploma í afbrotafræði, BA í frönsku
og MA í félagsfræði
Svanborg Sigmarsdóttir, MA í stjórnmálafræði
Svandís Nína Jónsdóttir, M.Sc. í stjórnmálafræði og doktorsnemi við
stjórnmálafræðideild H.Í.
Trausti Fannar Valsson, cand. jur. og Ph.D nemi
Þorsteinn Magnússon, Ph.D. í stjórnmálafræði
Með bestu kveðju,
Ásta Möller
forstöðumaður Stofnunar stjórnsýslufræða og stjórnmála
Institute of Public Management and Politics
Gimli við Sæmundargötu, 2. hæð, 101 Reykjavík
netfang astam at hi.is
s. 525-5454, gsm 8639307
http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
_______________________________________________
Þessi póstur var sendur á póstlistann Hi-starf at listar.hi.is.
Efni hans og innihald eru á ábyrgð sendanda og endurspegla
ekki endilega stefnu Háskóla Íslands í einstökum málum.
Sjá http://listar.hi.is/mailman/listinfo/hi-starf og
news:hi.listar.hi-starf.
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110303/1b62b8cf/attachment.html
More information about the Vid-stund
mailing list