[Vid-stund] Til kennara félagsvísindasviðs HÍ: Á FIMMTUDAG 27. JAN.: " Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust - Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti hjá stofnunum ríkisins? Morgunv.fundur og málþing á Grand hótel Reykjavík kl.8.30.

Ásta Möller astam at hi.is
Mon Jan 24 14:04:26 GMT 2011


Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða við HÍ bjóða 
til tveggja aðskildra viðburða;   
Morgunverðarfundar og málþings í Grand Hótel Reykjavík fimmtudaginn 27. 
janúar nk.  

Morgunverðarfundur kl. 8-10 
"Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust -  Hvernig  býr stjórnsýslan sig undir 
óvænt atvik?" 
Dagskrá hefst kl. 8.30, morgunverður frá kl. 8 *(sjá meðfylgjandi 
auglýsingu )   

Málþing kl. 10.15-12   
"Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði  og forvirku eftirliti 
hjá stofnunum ríkisins?  " 
**(sjá meðfylgjandi auglýsingu fyrir neðan morgunverðarfundinn) 

Þátttökugjald á báða viðburðina, morgunverðarfund og málþing (morgunverður 
innifalin) er 6900,-  Skráning hér:  morgunverðarfundur og málþing
Þátttökugjald eingöngu á morgunverðarfund er 4200,- og er morgunverður 
innifalinn   Skráning hér: morgunverðarfundur eingöngu
Þátttökugjald eingöngu á málþingið eftir morgunverðarfundinn er kr. 4200,- 
 Skráning hér: málþing eingöngu 













Eitt af hlutverkum stjórnvalda og stofnana ríkisins er að meta, greina og 
undirbúa viðbrögð við hugsanlegum áföllum í samfélaginu og bregðast við 
þeim. Á síðari árum hafa stjórnvöld um allan heim aukið áherslu á skipulag 
og samhæfingu viðbúnaðar til verndunar þegna sinna og er Ísland þar ekki 
undan skilið.   Hins vegar hafa fræðimenn bent á að í aðdraganda hruns 
íslenska efnahagskerfisins hafi skort á fyrirhyggju, viðbúnað og traust 
innan stjórnsýslunnar.  Á morgunverðarfundinum fjallar Tryggvi Gunnarsson 
umboðsmaður Alþingis um skyldur og ábyrgð stjórnsýslunnar og Þórunn J. 
Hafstein skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu ræðir hvernig 
stjórnarráðið getur tryggt að viðbúnaður innan kerfisins sé fullnægjandi 
og samhæfður.  Björn Karlsson, settur forstjóri  Mannvirkjastofnunar 
fjallar um aðferðafræði áhættustjórnunar, en hann er sérmenntaður í þeim 
fræðum. Að lokum mun Ásthildur E Bernharðsdóttir sérfræðingur í 
áfallastjórnun og kennari við HÍ fara yfir viðbrögð stjórnenda vegna 
áfalla.   Á eftir morgunverðarfundinum er málþing þar sem m.a. 
forstöðumenn ræða hvernig stofnanir þeirra standa að áhættustjórnun, 
viðbúnaði og forvirku eftirliti í starfsemi sinni.  Þar er borið niður á 
ólíkum sviðum í starfsemi ríkisins t.d. í fjármálaeftirliti, viðbrögðum 
við heilsuvá, öryggi í fjarskiptum, viðbrögðum við eldgosum og eftirliti 
með að greiðslur atvinnuleysisbóta séu í samræmi við reglur. Þá verður 
sérstaklega fjallað um öryggi í upplýsinga- og skjalastjórnun, en í 
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að í þeim efnum mætti gera 
betur í íslenskri stjórnsýslu.

Með bestu kveðju, 
Ásta Möller MPA, 
forstöðumaður/director 

Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management 
and Politics. 
Háskóli Íslands/University of Iceland 
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík 
astam at hi.is 
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307 
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/ 
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110124/da8c1d7d/attachment-0001.html 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 56147 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110124/da8c1d7d/attachment-0002.gif 
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 48766 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110124/da8c1d7d/attachment-0003.gif 


More information about the Vid-stund mailing list