[Vid-stund] Morgunverðarfundur og málþing fim. 27. janúar á Grand hótel " Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust - Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti hjá stofnunum ríkisins?
Ásta Möller
astam at hi.is
Wed Jan 19 14:59:04 GMT 2011
Félag forstöðumanna ríkisstofnana og Stofnun stjórnsýslufræða við HÍ bjóða
til tveggja aðskildra viðburða; Morgunverðarfundar og málþings í Grand
Hótel Reykjavík fimmtudaginn 27. janúar nk.
Morgunverðarfundur kl. 8-10
"Viðbúnaður, fyrirhyggja, traust - Hvernig býr stjórnsýslan sig undir
óvænt atvik?"
*(sjá meðfylgjandi auglýsingu )
Málþing kl. 10.15-12
"Hvernig er staðið að áhættustjórnun, viðbúnaði og forvirku eftirliti
hjá stofnunum ríkisins? - sviðsmyndir"
**(sjá meðfylgjandi auglýsingu fyrir neðan morgunverðarfundinn)
Þátttökugjald á báða viðburðina, morgunverðarfund og málþing (morgunverður
innifalin) er 6900,- Skráning hér: morgunverðarfundur og málþing
Þátttökugjald eingöngu á morgunverðarfund er 4200,- og er morgunverður
innifalinn Skráning hér: morgunverðarfundur eingöngu
Þátttökugjald eingöngu á málþingið eftir morgunverðarfundinn er kr. 4200,-
Skráning hér: málþing eingöngu
Eitt af hlutverkum stjórnvalda og stofnana ríkisins er að meta, greina og
undirbúa viðbrögð við hugsanlegum áföllum í samfélaginu og bregðast við
þeim. Á síðari árum hafa stjórnvöld um allan heim aukið áherslu á skipulag
og samhæfingu viðbúnaðar til verndunar þegna sinna og er Ísland þar ekki
undan skilið. Hins vegar hafa fræðimenn bent á að í aðdraganda hruns
íslenska efnahagskerfisins hafi skort á fyrirhyggju, viðbúnað og traust
innan stjórnsýslunnar. Á morgunverðarfundinum fjallar Tryggvi Gunnarsson
umboðsmaður Alþingis um skyldur og ábyrgð stjórnsýslunnar og Þórunn J.
Hafstein skrifstofustjóri í innanríkisráðuneytinu ræðir hvernig
stjórnarráðið getur tryggt að viðbúnaður innan kerfisins sé fullnægjandi
og samhæfður. Björn Karlsson, settur forstjóri Mannvirkjastofnunar
fjallar um aðferðafræði áhættustjórnunar, en hann er sérmenntaður í þeim
fræðum. Á eftir morgunverðarfundinum er málþing þar sem m.a.
forstöðumenn ræða hvernig stofnanir þeirra standa að áhættustjórnun,
viðbúnaði og forvirku eftirliti í starfsemi sinni. Þar er borið niður á
ólíkum sviðum í starfsemi ríkisins t.d. í fjármálaeftirliti, viðbrögðum
við heilsuvá, öryggi í fjarskiptum, viðbrögðum við eldgosum og eftirliti
með að greiðslur atvinnuleysisbóta séu í samræmi við reglur. Þá verður
sérstaklega fjallað um öryggi í upplýsinga- og skjalastjórnun, en í
skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis kemur fram að í þeim efnum mætti gera
betur í íslenskri stjórnsýslu.
Með bestu kveðju,
Ásta Möller MPA,
forstöðumaður/director
Stofnun stjórnsýslufræða og stjórnmála / Institute of Public Management
and Politics.
Háskóli Íslands/University of Iceland
Gimli við Sæmundargötu, 101 Reykjavík
astam at hi.is
Símar/tel +354- 525-5454/ +354-8639307
Heimasíða: http://www.stjornsyslustofnun.hi.is
Veftímarit:http://www.stjornmalogstjornsysla.is/
-------------- next part --------------
An HTML attachment was scrubbed...
URL: http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110119/61b6b905/attachment-0001.html
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 51137 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110119/61b6b905/attachment-0002.gif
-------------- next part --------------
A non-text attachment was scrubbed...
Name: not available
Type: image/gif
Size: 48766 bytes
Desc: not available
Url : http://listar.hi.is/pipermail/vid-stund/attachments/20110119/61b6b905/attachment-0003.gif
More information about the Vid-stund
mailing list